Kirkjuritið - 01.12.1960, Side 48

Kirkjuritið - 01.12.1960, Side 48
478 KIRKJURITIÐ Yfirmanna álög stríð urðu þrátt að meini; illt er að flá sinn undirlýð allt að sinum og beini. Og svo þetta upphaf kvæðisins Um góöa landsins kosti: Sumar kveður, sól fer úr hlíðum. Vér höfum fengið lausn og lið, lífs og sálar yndi og frið. Það skulum allir þakka Drottni blíðum. Franz Kafka: Hamskiptin. Hannes Pétursson þýddi. — Bóka- útgáfa Menningarsjóðs 1960. Höfundurinn er heimsfrægur og þýðandinn þjóðfrægt skáld. En ég játa samt hreinskilnislega, að mér finnst þetta fremur leiðinleg bók og ógeðfelld. Og ég hygg, að hún eigi ekki brýnt erindi. Þætti ekki ólíklegt, að hún verði eins og spýta, sem ligg" ur eftir, þegar flest annað er hirt af fjörunni. Annars er þessi smábókaútgáfa Menningarsjóðs mesta þarfa- þing og vonandi, að henni verði haldið áfram. Halldóra Bjarnadóttir, œvisaga. Vilhj. S. Vilhjálmsson skrá- setti. — Setberg s.f. 1960. Halldóra Bjarnadóttir hefur verið einfari og eldhugi. Henni verður helzt líkt við norska skáldið Wergeland, sem alltaf gekk með skógfræ í vasanum, til að geta sáð þeim, hvar sem hann var á ferðinni. Frá unga aldri hefur Halldóra brunnið af þeirri þrá að verða þjóð sinni að liði. Hún var trúboði nýrra fræðslu- aðferða, en fyrst og fremst heimilismenningarinnar. Það er táknrænt, að mynd af rokk er framan á bókinni. Það mætti kalla Halldóru „konuna með rokkinn", ekki aðeins vegna þess, hví- líkur postuli tóvinnunnar hún er, heldur engu síður hins, hvað hún hefur spunnið marga hamingjuþræði með kennslu sinni og hvatningarræðum. Engin kona hefur hérlendis brotið sér hik- lausar og beinni braut að settu marki en hún. Hún hefur farið um lönd og höf til að kveikja áhugaelda og hrinda starfi af stað- Talað máli heimilisiðnaðarins og stutt það með sýningum í öll-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.