Kirkjuritið - 01.06.1962, Blaðsíða 11

Kirkjuritið - 01.06.1962, Blaðsíða 11
KIRKJURITIO 249 persónuleikinn einhvern veginn fjarri eða fjarlægður, brosið án innri birtu. Eða var þetta kannske missýning? Eða er það útstreyini þeirra álirifa, sem tvær heimsstyrjaldir bafa mótað í sál og svip þessarar eftirstríðsæsku, sem hefur alizt upp við batursfullan áróður og flokkadrátt kalda stríðsins og ógnir hins komanda undir bimni eldflauga, tunglskota og atomvopna. Engin æska befur alizt upp fyrri við slíkar ógnanir með svo biturt sverð ósýnilegt, en þó vissu þess að það liangir yfir liöfði við livert fótmál. Við liöfum gefið þessu veslings unga fólki lieim fullan af allsnægtum hér á Veslurlöndum, en þó líkt og veizluborð, sem um getur í Biblíunni, þar sem ósýnileg bönd skrifar mene tekel á vegginn. Og enginn veit, livar bann danzar næstu jól, með þessar dulrúnir fvrir augum. Og við hér höfum leyft hertækni og drápstækjum nútímans landnám, kaimske í illri nauðsyn vegna annars verra, en við böfum þannig skapað nábýli æskunnar, barnanna, sem við elskum heitar en lífið í eigin brjósti við loga baturs og tor- tryggni, gefið þeim vopn að leikfangi og að augnaraun viður- styggð eyðingarinnar standandi á helgum stað, sem þessi vor- aldarveröld sem eylendan okkar á að vera og verða okkur öllum. Þetta er liræðilegt blutskipti. Er þá að furða, þótt þetta fólk sé lítiltrúað eða hafi aldrei eignast draumsýnir sannrar og eðlilegrar æsku um frið og bræðralag? Hafa ekki einmitt þessar bugsjónir þokað í skuggann fyrir skelfilegum stað- reyndum? En live fátæk er sú æska, sem á ekki drauma, þrátt fyrir alla aurana í vasanum, sælgæti í munni og skennntikvöld við glymjandi liávaða tízkutóna og jassorga. „Æskan skapar œvi manns. Æskuvorsins draumar eru verndarenglar hans og œvikjarastraumar“. Og ekki er langt síðan einn af mestu æskulýðsleiðtogum Norðurlanda sagði eitthvað á þessa leið: „Æskan er tími skáldleikans öllum æviskeiðum fremur. Hún er tími bugsjónanna. Hún skapar draumsýnir bins komandi, sem eiga að verða að veruleika og fyllir björtun ljúfri, heitri

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.