Kirkjuritið - 01.06.1962, Blaðsíða 48

Kirkjuritið - 01.06.1962, Blaðsíða 48
286 KIRKJURITIO ég hefft'i lent nær stólbríkinni, þá mundi ég liafa stórslasast eða jafnvel beðið bana, því að fallið var ákaflega snöggt og þungt. Vafurlogi Arið 1852 var ég á ellefta árinu og átti heima í Höfðahólum á Skagaströnd. Það bar svo til á þrettánda dag jóla, að ég var ásamt öðrum unglingspilti sendur með nautgrip fram að Vind- hæli. Sá bær stendur sunnar og austar. Þetta var rétt fyrir hádegi. Veður var gott en heldur dimmt og drungalegt loft og leit út fyrir útsynning. Við áttum yfir all langa mýrarflóa að sækja, en svo stóð á, að lilákur liöfðu gengið undanfarið, en var nú farið að frjósa, svo svellalög voru talsverð á flóanum og við urðum að krækja eftir auðu hlettunum. Þá var það eitt sinn, er við vorum á þessu hringsóli, að okkur varð litið til norðurs; sáum við þá hvar logi gaus upp á mýrunum fyrir ofan Höfðakaupstað. Loga þessum skaut ýmist upp eða niður. Hann var ljósleitur er hann kom, en bláleitur livert sinn er hann fór niður. Við horfðum undrandi á þetta lengi; svo héldum við loks áfram, en vorum alltaf að líta aftur og sáum jafnan hið sama, allt þar til að við komum lieim að bænum. Á leiðinni heim sáum við enga nýlundu. Engin hyggð er í nálægð við stöðvar þær er við sáum ljósið á, því fyrir ofan kaupstaðinn eru svarðargrafir miklar, svo taka við víðáttumiklir flóar, en nokkuð fyrir ofan grafirnar var hál þetta er við þóttumst sjá. Þess má geta að það var, að okkur virtist um 2—3 fet er það var hæst. Villa Á einu af seinustu árum mínum á Mánaskál, eða kringum 1870, kom fvrir mig atvik það, er nú skal greina. Það var kvöhl eitt um liaustið, skömmu eftir veturnætur, að mér var vant tveggja eða þriggja sauða, þegar ég lét inn um kvöldið. Mér datt í hug að þeir mættu hafa lent í féð á Núpi, sem er næsti bær þar fyrir framan, þeim megin í dalnum. Ég fór því þangað að spyrja eftir þeim en varð einskis vísari. Hélt ég þá að skeð gæti, að þeir liefðu flækst saman við Úlfa- gilsféð, ])ví að áin var lögð. Er bær sá að vestanverðu við ána,

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.