Kirkjuritið - 01.06.1962, Page 37
KIRKJURITI0
275
ekki bærnst þegar spurningar frá lesendum, ef þeir væntu
þess að þetta væri á döfinni. Þætti ekki ólíklegt að margur
velti ýmsu fyrir sér á sviði kristni- og kirkjumála, sem hann
æskti að heyra fróða menn segja sitt álit um. Þótt engar lausn-
ir fengjust á sumu, er brytt væri upp á, ætti tilreyndin ekki
að kosta neitt, en ritið gæti orðið fjölbreytilegra og gagnlegra,
ef sæmilega tækist til um framkvæmdina.
Vill ekki einhver, sem þetta les, ríða á vaðið með spurningar?
B Æ N
Hingað fæddist í holdi
hann, sem kvalirnar þoldi.
— Mönnum miðaði seint. —
Ást vor er ofin þyrni
eitraðrar eigingirni.
— Ekkert er óhreinum hreint. —
Ég kalla að krossi þínum
sem kunnur ert misgjörðum mínum:
Helga mig heilli trú!
Legg ég í lófa þína
Iaunungarsyndina mína.
Meistari, minnztu mín nú!
Ú. R.