Kirkjuritið - 01.06.1962, Síða 44

Kirkjuritið - 01.06.1962, Síða 44
282 KIRKJURITIÐ Það er mjög líklegt að altaristaflan væri nú glötuð, ef þær Bjarnastaðalilíðar-systur liefðu ekki verið kallaðar til björg- unarstarfs á stund liættunnar. Ég heyrði séra Tryggva Kvaran lialda því fram, að altaris- taflan, það er niálverkið, væri eftirlíking af lieimsfrægu mál- verki eftir ítalska snillinginn Leonardo Da Vinci. A baklilið altaristöflunnar er eftirfarandi skráð skíru lelri: „Þessa altarisbrík lét Sigurður prestur Jónsson tilbúa í Kaupmannahöfn 1837. Bríkin er gjörð að trésmíði af Snedker- mester Hólm og Málarameistara B. Tilly að öllu leyti eftir minni fyrirsögn. — B. Svenson, exam: juris“. Séra Sigurður Jónsson var prestur í Goðdölum frá 1822 til 1838. Hann liefur því látið búa til altarisbríkina árið áður en bann fluttist frá Goödölum vestur að. Staðastað. Ekki stend- ur þaö skrifað að þessi kirkjugripur sé gjöf frá lionum, en líklegt má það telja. Þá vil ég í stuttu máli segja frá þeirri viögerð á kirkjunni, sem nú hefur farið fram. Á safnaðarfundi í maímánuði 1958 var tekin ákvörðun um, að láta gera við kirkjuna. Tveir húsasmiðir frá Sauðárkróki, þeir Sveinn Ásmundsson og Magnús Sigurðsson, voru fengnir til að gera atliugun á skemmdum og gera tillögur um viögerð. Þeir töldu að kirkjan væri ekki mikið fúin. Viðgerð liófst fyrir rúmn ári síðan. Trésmíðaverkstæði Kaupfélags Skag- firðinga lók að sér trésmíði og unnu þeir smiðirnir, Einar Sig- tryggsson og Friðrik Jónsson, það verk. Hörður Jörundsson málarameistari á Akureyri tók að sér að mála og vann bann það verk ásamt aðstoðarmanni sínum Hjalta Þorsteinssyni. Kostnaðarreikningar bafa ekki verið teknir saman, en eftir því, sem ég bef komist næst, mun kostnaðurinn verða 75 til 80 þúsund kr. Þessar gjafir bafa kirkjunni borizt: Frá Eyþóri Tómassyni 5 þús. kr. á árinu 1957. Auk þess gaf bann á þessu ári málningu, sem kostaði kr. 3.746.00. Frá Snjólaugu Sveinsdóttir og Elínu Sveinsdóttur 1 þús. kr. Frá Sveinbjörgu Sveinsdóttur 500 kr. Frá Guðrúnu Sveinsdóttur 5 þús. kr. Auk þess gaf Iiún messu- skrúða, sem í dag var notaður í fyrsta sinn.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.