Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1970, Qupperneq 7

Kirkjuritið - 01.10.1970, Qupperneq 7
KIRKJURITIÐ 341 var einlæg og fæddi af sér þrá eftir fleiri sigrum. En umhugs- unin um Kína vakti sífellt í brjósti hans. Samt var nú svo koniið, að tvennt var farið að taka huga hans, en ekki aðeins Austurlandaförin. Nii fannst lionum hann ekki geta yfirgefið körnin, sem þörfnuðust svo hjálpar hans í hans eigin föður- landi. En svo kom atvikið, sem réði úrslitunum. Verður nú sagt frá því hér, eins og það er að finna í afbragðsgóðri ritgerð um Barnardo: »Það var vetrarkvöld. Barnardo var að loka barnaskólanum sínum. Þá nam einn drengjanna staðar á þröskuldinum og horfði löngunarfullum ailgum á eldinn í stofuofninum. Það var kalt úti, en hlýtt í 8tofunni. >»Farðu nú heim, barnið gott,“ sagði Barnardo. »Ó, herra minn, lofið mér að vera hérna í nótt. Ég skal ekki gera neitt illt af mér.“ »Vera hérna í nótt? Hvað heldurðu að hún mamma þín hugsi?“ >>Ég á enga mömmu.“ «En hann pabbi þinn þá?“ »Ég á engan pabba.“ «Hvaða bull, barn. — En vandamenn þínir? Hvar áttu heima?“ »Ég á enga vandamenn og á livergi heima.“ Éarnardo trúði varla. Annað eins hafði honum ekki komið hugar. Hann fór þá að spyrja drenginn: „Segðu mér, erU uiargir fleiri drengir í Lundúnum, sem hvergi hafa liöfði sínu að að halla, eins og þú?“ »Já, herra, margir, margir — heilir hópar, fleiri en ég get talið “ Þetta varð að atliuga nánar. Uarnardo fór með drenginn heim til sín, gaf honum mat °S hað hann að segja sér, hvað á dagana hefði drifið. Dreng- Urinn sagði svo sögu sína: Hann hét Jim Jarwick oog hafði aldrei þekkt föður. En ^uóðirin var heilsulaus aumingi, sem ekki gat annast drenginn. Un kom honum þess vegna á uppeldisstofnun, þegar hann 'ar fimm ára. Þar leið honum vel. En svo dó móðir hans

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.