Kirkjuritið - 01.10.1970, Blaðsíða 26
Guð er ekki lengur
gamli maðurinn á himnum
Samtal viS forseta guSjræSiháskólans í Princeton,
dr. James McCord
Forseti guðfræðiháskólans í Princeton í Bandaríkjunum, dr. Jaines Mc-
í'ord, dvaldist nokkra daga hér á landi í sumar í hoði handaríska
sendiherrans, sem er stuðningsmaður skólans og á sæti í stjórnarnefnd
hans. Undirritaður hitti dr. McCord snöggvast að máli og lagði fyrir liann
nokkrar spurningar um Princeton-háskólann og trúarlif og guðfræði-
kennslu í Bandaríkjunum.
— Guðfræðiskólinn í Princeton var stofnaður árið 1812, og
er því rúmlega liálfrar annarrar aldar gamall, lióf dr. McCord
mál sitt. Stúdentarnir, sem koma til náms hjá okkur liafa fyrst
lokið B. A. prófi frá öðrum háskólum. Þeir stunda svo nám
um þriggja ára skeið og ljúka að því loknu B. D. prófi, Bachel-
or of Divinity. Þeir, sem lialda áfram náini til doklorsprófs,
verja til þess fjórum árum í viðbót.
Nú stunda um 650 stúdentar nám í skóla okkar, þar af um
50 útlendingar. Þeir eru af öllum heimshomum, frá Evrópu»
Asíu, Afríku, Suður-Ameríku, Ástralíu og Nýja Sjálandi. Marg-
ir útlendinganna eru lengra komnir í námi og vinna að sérstök-
um verkefnum. Þeir eru þá að búa sig undir starf við guðfræði-
háskóla eða kirkju lieimalands síns.
1 Prineeton-liáskólanum leggjum við stund á þær fjórar
greinar guðfræði, sem frá -öndverðu hefur tíðkazt að kenua
í guðfræðideildum háskóla. En auk þess liöfum við lagt okkur
eftir því að fylgjast með framþróun og aðferðum í ýmsum
fræðigreinum. Þannig leggjum við ríka álierzlu á hagnýta guð"
fræði og notfærum okkur ýmsar greinar félagslegra vísinda-
Til dæmis eru þrír sálfræðingar í fullu starfi hjá okkur og
við erum í tengslum við sex sjúkrahús. Starfa stúdentar okkar
um skeið á sjúkrahúsunum og fá leiðsögn í því starfi. Þá eru