Kirkjuritið - 01.10.1970, Blaðsíða 38
Dr. Jakob Jónsson:
Tveir fundir
i.
1 smnar veittist mjer sú ánægja að taka þátt í norrœnum fundi
sjúkrahúspresta. Hann var lialdinn í Modum Bads Nervesana-
torium í Noregi. Slíkir fundir hafa mörg undanfarin ár verið
haldnir til skiftis á Norðurlöndum, nema Islandi, og þó að
næsti fundur hafi verið ákveðinn í Finnlandi, er vonandi, að
ekki líði á löngu, áður en við verðum þeirrar gleði aðnjot-
andi, að slíkur fundur verði hjer á landi. Þama voru saman
komnir um það bil fimm tugir presta og þar af tveir Islend-
ingar, við sjera Felix Ólafsson. Sumir voru prestar við stór
sjúkrahús, en aðrir sóknarprestar, sem höfðu sjúkraliús innan
prestakalla sinna.
Aðalræðumenn voru allir norskir. Dagfinn Hauge, Iiiskup
lalaði um trúarhugmyndir og trúartilfinningu almennings, og
varaði við að draga of skarpar línur milli hins almenna og
liins strangkirkjulega. Kirkjan ætti að vera rúmgóð og leggja
rækt við að finna snertipunktana milli hins ahnenna og kirkju-
lega. Aðrir frummælendur voru Alexander Jónsson, biskup?
dr. Knud Enger, sjúkraliúsaprestur, Peder Olsen, dómprófast-
ur, Hans Jörgen Holm, aðstoðaryfirlæknir, en umræður foru
að mestu fram í smáhópum.
Meðal þeirra atriða, er mest vora rædd, vil jeg nefna í fyrsta
lagi þörfina fyrir prestsþjónustu meðal sjúklinga og annarra,
sem byggju við ýmis konar fötlun, og síðan sambandið miH1
prestsins og þeirra, sem eiga að njóta þjónustu hans, bæði 1
predikun og sálgæzla. Hafði jeg ekki sízt ánægju af að heyra
fyrirlestur læknisins. Hann taldi, að eðlilegt samband væri miHJ
lækningar og sálgæzlu. Það er í samræmi við það sjónarmi^’
að við heilsuliælið í Modum Bad liefir nú verið mynduð uý
stofnun, sem nefna mætti sálgæzlustofnun, og forstöðumaður
hennar er ungur prestur, Hoydal að nafni. Hefir hann dvali*^
vestan hafs um skeið til að kynna sjer samstarf presta °S