Kirkjuritið - 01.10.1970, Blaðsíða 22

Kirkjuritið - 01.10.1970, Blaðsíða 22
KIRKJURITIÐ 356 Þá víkur þessi faðir orSum sínum til foreldra almennt. Bend- ir þeim á að þeir skuli ganga með opin augu og vera þess vitandi að hættan er yfirvofandi. En þeim sé ofvaxið og ófært að vaka svo yfir börnum sínum að fullnægjandi sé. Áríðandi sé að þau sýni þeim einlæga ástúð og réttmætt traust og leitist við að skilja þau og leiðbeina þeim eftir föngum í þessum málum. Deilur og strangleiki geta gert illt verra. Vinsamlegar við- ræður aftur á móti orðið til bjargar. Þess vegna er foreldrunum nauðsynlegt að vita sem gleggst deili á fíknilyfjunum og afleiðingum þeirra. Og þau geti sagt margt með sannri vissu. Til dæmis að það er ofmælt að marijuana sé skaðlaust. Fyrir því eru ekki nieiri rök en þeirri staðhæfingu áður fyrr að vindlingareykiugar gætu ekki valdið hættulegum sjiikdómum. Eins má benda a að áfengi er auglýst um allar jarðir og fjöldi manna hlægj3 að því, að það sé þeim nokkuð til meins eða miska að neyta þess. En samt er það alheimsbölvaldur. Það er líka sjálfsblekking að trúa því að unnt sé að forðast lífsleiða og kveða niður hryggð og mæðu með deyfilyfjum- Aðeins draga úr sviðanum stund og stund með þeirri afleið- ingu að eftir á verður þó allt þungbærara. Nokkuð geta foreldrar ráðið því liverja trúnaðarvini bÖrmn velja sér, að minnsta kosti fylgst með því ef þau virðast fan» að villast og slá undan vindi. Tekin að trassa námið, temja sér óeðlilegar útivistir, sækja lélega skemmtistaði. Ég vil bæta því við í lokin, að ekki má gleymast að bug' sjónirnar, lífsmarkið, ráða því öllu meira en nokkuð annað livort unglingarnir lialda sér réttum á kili eða ekki og komast í liöfn. Ef ráðvillu, glaniurmennsku og nautnasýki gætir meira 1 fari ýmiss æskufólks nú en áður, er ein böfuðsökin sú að trúar- leg og siðgæðisleg ábrif eru meir vanmetin á lieimilum og skól' um. Andrúmsloftið í beinni eða óbeinni snertingu er mengað eins og útsærinn. Hvers vegna snýr ungt fólk baki við kirkjunni? Þessi spurning var borin fram á æskulýðsþingi í Englaiidu sem 140 fultrúar sátu. Svörin voru í þessum dúr:

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.