Kirkjuritið - 01.10.1970, Blaðsíða 44

Kirkjuritið - 01.10.1970, Blaðsíða 44
378 KIRKJURITIÐ INNLENDAR FRÉTTIR Heirn aS Húlum. — IlólahátíSin, fundir prestafélagsins og Hólafélagsins. Hólaliátíðin fór fram á Hólnm í Hjaltadal sunnudaginn 16. ágúst sl. Sól- skin var og bezta veður. Dagskráin hófst kl. 2 með samhringingu, er prestar gengu hempuklæddir til kirkjunnar. Um 1600 manns voru sainan komnir í kirkjunni. Guðsþjónustan hófst með hæn í kórdyrum, er með- hjálparinn Guðmundur Stefánsson bóndi á Hrafnhóli flutti. Kirkjukor Siglufjarðarkirkju söng. Organisti og söngstjóri kórsins Páll Helgason lek á orgelið. Predikun flutti séra Pétur Sigurgeirsson vígsluhiskup og hafði að texta Matlh. 17 1—8, sem liafður var á 150 ára afmæli kirkjunnar 1913. Altaris- þjónustu önnuðust séra Kristján Róbertsson Siglufirði og séra Sigfús J- Árnason Miklabæ. Þá var altarisganga. Að lokinni messu var hlé til kl. 4,30, en þá hófst almenn samkonta i kirkjunni. Fráfarandi formaður Hólafélagsins séra Jón Kr. ísfeld, Bólstað flutti ávarp, en nýkjörinn formaður séra Ámi Sigurðsson Blönduósi stjórn- aði samkomunni. Einsöng söng Eiríkur Stefánsson frá Akureyri við undir- leik Áskels Jónssonar. Erindi flutti séra Sigurður Guðmundsson prófastur Grenjaðarstað, er hann nefndi: Vísa þeim unga veg. Prófastsfrúin á Hólum, Emma Ásta Hansen las kvæðið Jón Arason eftir séra Matthías Jochunis- son.Lokaorð flutti séra Pétur Ingjaldsson, prófastur á Skagaströnd. Kveðjur og árnaðaróskir bámst m. a. frá biskupi íslands lierra Sigurbirni Einars- syni og söngmálastjóra Róhert A. Ottóssyni. í sambandi við hátiðina voru fundir hæði í prestafélagi Hólastiftis og Hólafélaginu, sem er félag áhugafólks um uppbyggingu Hólastaðar. Fundur prestafélagsins var haldinn að Löngumýri í Skagafirði og hófs* laugardaginn 15. ágúst kl. 4 e. h. Mættir voru 13 prestar eða helmingur þeirra, sem eru á félagssvæðinu, er nær yfir Þingeyjar- Eyjafjarðar-, Skagu- fjarðar- og Húnavatnsprófastsdæmi. Fundurinn hófst með helgistund í kapellu skólans, sem formaður félags- ins séra Friðrik A. Friðriksson fyrrverandi prófastur annaðist. Þá hófust fundarstörf. Formaður gaf skýrslu og lýsti dagskránni. Tilnefndi liann fundarstjóra séra Sigurð Guðimmdsson prófast. Gjaldkeri félagsins sera Pétur Ingjaldsson prófastur las upp reikninga, er síðan voru samþykktir- Tckið var fyrir umræðuéfnið: útgáfumál. Framsögu hafði séra Jón Kr- ísfeld. Sainþykkt var á síðasta aðalfundi að gefa út rit félagsins TíSindi > tilefni af 70 ára afmælinu, og síðan að útkoma þess verði á 10 ára fresti- Munu Tíðindin koma út á þessu ári. Þá var tekið fyrir annað höfuðinál dagskrárinnar: Endurreisn Hóhi' biskupsdœmis. Framsögu hafði séra Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup- Lagði hann til gmndvallar tillögu hiskups á síðustu prestastefnu, að HóD' hiskupsdæmi yrði endurreist 1974. Umræður urðu nokkrar um væntaU' legt aðsetur Hólabiskups. Kom fram greinilegur vilji fundarmanna í Þ11

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.