Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1974, Page 16

Kirkjuritið - 01.12.1974, Page 16
— Ég var í þrjú ár á Siglufirði og síðan í sex ár á Akureyri, þannig, að ég hafði þjónað í rétt tíu ár, þegar ég sagði af mér prestskap sumarið 1960. — Einn prestur, sem var á sínum tíma í Þingeyjarsýslum, sagði mér, að Þingeyingar vœru að þvi leyti góðir, að þeir vceru ekki frábitnir því að rœða predikun presta. Gcetti þess eitt- hvað á þínum slóðum? — Ég býst við því, að töluvert hafi verið rcett um predikanir presta, bœði á Raufarhöfn og þá ekkert síður á Siglufirði. Mér fannst alltaf vera þó nokkuð rœtt um predikanir á Siglu- firði. Þess vegna var ekkert að óttast, þótt ekki vœru ýkja margir í kirkju þar, þegar prestur œtlaði að halda dálítið kraumandi rœðu. Hún komst til skila samt. Akureyringar eru dulari. Þó vissi ég það, að þetta var til þar. Það kom einnig fyrir þar, að hringt var til prestsins út af predikun, ýmist til að þakka fyrir eða gera athuga- semdir. Sums staðar í Þingeyjarsýsl- um rœða menn hins vegar predikanir þó nokkuð sín í milli, og á einum stað vissi ég til, að þeir voru reiðubúnir að rœða hin og þessi atriði við prestinn strax eftir messu. — Þannig að sinnuleysis hefur lítið gœtt? — Ég held, að sinnuleysi í trúar- efnum hafi ekki verið mikið á Norður- landi. Annað mál er það, að þar er mjög algengt að hitta fólk, sem ekki er kirkjulega sinnað, en það er ekki sinnulaust um trúmál. Ég hef oft sagt það um íslendinga, að þeir vœru kannski með trúaðri þjóðum. En þeir trúa á sína vísu, og gera ef til vi11 minna með boðskap okkar prestanna. — Þeir hafa sína eigin Guði? — Já, þeir hafa sína Guði, en þeir trúa. Alltaf við grœna borðið — Þessi ár fyrir norðan fœrðu mér bœði súrt og sœtt, eins og gengur, segir síra Kristján. En ég hef enga ástœðu til að vanþakka það. Eins langar mig þó að geta í sambandi við starf mitt á Akureyri. Prestar í slíkum fjölmennis presta- köllum hafa í raun og veru alltof mik- ið að gera. Þeir hafa ekki tíma til þess að byggja sig upp. Þeir hafa ekki tíma til að lesa. Þeir hafa ekki tíma til að undirbúa predikanir sínar nógu vel. Þeir eru í þeirri hœttu að verða ekki ferskir. Auk þess er það takmark- að, hvað mannleg heilsa getur þolað það álag að vera stöðugt í sviðs- Ijósinu. Það er óskaplegt álag fyr'r prest að fara kannski varla úr hemp- unni frá morgni til kvölds, vera að skíra og gifta og messa nœstum fra morgni til kvölds, eins og kemur fyr,r á hátíðum, — vera sem sagt aIItaf eins og miðpunkturinn í þvl, sem er að gerast. Og nú er það þannig með miQi að ég er að eðlisfari ákaflega hle- drœgur. Þó á ég ekki von á því, a^ þess gœti yfirleitt. Ég hef viðrað þeda þó nokkuð mikið af mér, en það cr allmikil áreynsla samt og eins rnikil, þótt hún liggi ekki í augum uppi- — Þetta er sífellt próf að vera prestur. 302

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.