Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1974, Qupperneq 24

Kirkjuritið - 01.12.1974, Qupperneq 24
ins. Þá átti ekki að ónáða prestinn nema í lífsnauðsyn. Prestar hafa þar einni'g sumarfrí, sem skal ná yfir fjóra sunnudaga á ári. Með lagi má teygja það hátt í sex vikur. Og til þess var œtlazt, að prestur fœri burt úr presta- kallinu í því fríi. Það þótti betra, að prestur léti ekki vita af, hvar hann vœri. Þá var engin freisting fyrir söfn- uðinn að fara að kalla í hann, þótt eitthvað kœmi fyrir. Undarlegt samfélag presta Frú Auður Guðjónsdóttir, prestsfrú Þykkbceinga, er komin í stofuna fyrir löngu. Hún leggur lítt til mála, en bollaglam og skála hefur aukizt, og köttur og börn eru á hcelum henni og kringum hannyrðahnykla hennar. Nú leggur hún orð í belg og spyr mann sinn, hvort honum þyki ekki þess vert að minnast á fundi þeirra prestanna 1 bœnum. — Jú, anzar hann. Þá œtlaði ég að nefna. Ég var eini lútherski prest- urinn á stóru svœði, því að lútherska kirkjan í Kanada er svona frekar minnihluta kirkja. Hins vegar var fjöl- mennasti söfnuðurinn í Glenboro presbyterianasöfnuður. Ennfremur var þar anglikanasöfnuður, sem var fá- mennastur safnaðanna. Auk þess stofnuðu svo rómversk-kaþólskir söfn- uð þar í bcenum, á meðan ég var þar, en þeir höfðu enga kirkju, heldur fengu afnot af okkar kirkju einu sinni í mánuði. Fólk úr þessum söfnuðum bjó þarna náttúrlega hvað innan um annað, og til þess nú, að við vcerum ekki að rekast á eða fara hver inn í annars verkahring, þá ákváðum við prestarn- ir, að hafa reglubundna fundi með okkur. Við komum saman einu sinni í hálfum mánuði og þá að jafnaði í skrúðhúsi lúthersku kirkjunnar í Glenboro. Þar byrjuðum við að jafnaði á því að rceða starfið, sögðum frá því, sem við höfum verið að gera eða höfðum í hyggju, bárum saman bœkur okkar, til þess að ekkert rœkist á. En síðan óx þetta miklu meira, þannig að við fórum einnig að rceða guðfrœðileg ágreiningsefni og gerð- um þá grein fyrir skoðunum kirkju- deilda okkar á ýmsum efnum og skýrðum þcer. En við deildum aldrei um þau efni. Við vorum í upphafi undir það búnir og sammála um það að vera ósammála. Við lögðum vilj" andi sérstaka áherzlu á þau atriði, sem við vissum, að ágreiningur var um, til þess að engin hcetta vœri á, að hver fceri að sœra annan af klaufa- skap. Við vissum því nákvœmlega, hvar við stóðum, og gátum virt hver annars sjónarmið. Út frá þessu myndaðist svo ýmis- legt samstarf milli okkar, sem meira að segja var komið svo langt, að við vorum í alvöru farnir að rœða um að stinga upp á því við yfirvöld, að ger® yrði tilraun með nokkurs konar presta- miðstöð á staðnum, þar sem við störf- uðum saman og gcetum þá e. t. v- sérhœft okkur að einhverju leyti. Þ0 hefði einn t. d. getað tekið að sér lestur og predikunarstarf, annar hefð' getað sinnt gömlu fólki og sjúkrahus1, þriðji ceskulýðsstarfi o. s. frv., fjórði húsvitjunum og fleiru. 310
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.