Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1974, Síða 29

Kirkjuritið - 01.12.1974, Síða 29
kirkjufélagi, sem um var að rœða. Ég býst þess vegna við, að prestar þar hafi verið miklu „dogmatískari" en hér. Þeim var það eðlilegt. Þetta var eitt af því, sem kom mér dálítið spánskt fyrir sjónir. Þó get ég ekki sagt, að mér þœtti þetta neitt óþœgilegt. Hins vegar fannst mér oft styrkur að þvi að vita, að þarna var alveg fastur og ákveðinn grundvöllur. Einn veturinn tók ég mig til og fór með stjórnarskrá LCA á sóknarnefnd- arfundi og skýrði hana og túlkaði fyrir menn. Þá kom kenningin vitanlega einnig til umrœðu, og allt var á hreinu. Enda varð ég ekki var við, að árekstr- ar yrðu milli presta um þessi efni. Prestar gátu verið misjafnir starfs- rnenn, en engin hœtta var á, að þeir fœru að rífa niður kenninguna hver fyrir öðrum. /fStraujuð messa" ■— Hvað segirðu um sjálfa mess- una? spyr sira Arngrímur. -— Hún er mjög áþekk í þrem lút- hersku kirkjudeildunum í Kanada, og Lvaer þeirra nota sömu messubók. hetta ervitanlega hin klassíska messa, e. t. v. með örlitlum frávikum. Það er eins og ég hef stundum sagt við Þig, síra Arngrímur: Þetta er sama messa og þú notar. Hún er bara „straujuð" í Ameríku. Það eru svona ýrnis smáatriði, sem þú notar, sem folla niður hjá þeim. Sama messu- form er notað allt árið og þó þannig, að prestar umgangast þetta form okaflega sveigjanlega. Ameríkanar eru svo miklir pragmatistar, að þeir eru ekki að gera neitt veður út af því, sem ekki skiptir máli, að þeirra dómi. Söfnuðurinn stendur t. d. við sálma- söng, en sé presturinn þreyttur, þá sezt hann á meðan og tekur ekki þátt í söngnum. Þetta þótti mér mjög þœgi- legt. Eins er það, ef kór syngur eitt- hvað sérstakt í messunni, þá sezt presturinn ósköp rólega. Talið berst einnig að klœðnaði presta og messuklœðum, og segir sira Kristján, að enn séu til lútherskir prestar þar vestra, sem helzt vildu messa í jakkafötum sínum, líkt og síra Jón Bjarnason hefði helzt kosið. Klœðnaður og ytra form eru þar talin skipta minna máli. Hins vegar hefur lítúrgísk nefnd á vegum LCA ekki alls fyrir löngu heimilað notkun hökuls við kvöldmáltíðir, en ekki ella. Lítúrgískar hneigðir sinar segir síra Kristján frem- ur hafa við ast af sér þar vestra. Grundarkirkja, — fríkirkja oig góður söfnuður — Nú er spjall þetta nokkuð farið að losna úr böndum. — Mynd af Grund- arkirkju kemur óvœnt með póstinum og snertir einhverja strengi. — Mér hefur aldrei þótt eins vœnt um nokkra kirkju eins og þessa, verður síra Kristjáni að orði. Ég átti oft leið framhjá henni, og þó að hœtt vœri að nota hana, þá var það nú samt þann- ig, að hún var alltaf opin. Og ég renndi oft heim að kirkjunrti og fór þar inn, átti þar stund. — Hún var mér afar kœr, — ákaflega mikill hluti af sjálfum mér, Það berst í tal, að síra Kristján er að taka saman þœtti úr vestur-ís- lenzkri sögu. Hann segir, að eitt aðal 315
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.