Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1974, Side 44

Kirkjuritið - 01.12.1974, Side 44
svo þessi kirkja með Guðs hjálp og góðra manna tilverknaði, stór, glœsi- leg, stllhrein kirkja. Stórt og veglegt íbúðarhús reis af grunni á sama tíma. Við Biskupstungnamenn höfum kallað það biskupshús hvort sem það verður nokkurn tlma bústaður bisk- ups. fbúðarhús dómkirkjuprestsins er I smíðum og býli bóndans uppi á túninu vel uppfœrt að húsakosti og rœktun og mun þó meira verða, því stórbú ber að reka á höfuðbóli höf- uðbólanna, án þess missir Skálholts- staður nokkuð af svip sínum. Það hefur verið sagt nýlega í blaða- grein, að þrátt fyrir það, sem búið er að gera á Skálholti, þá vanti enn líf á staðinn. Svo er það einatt, að sitt sýnist hverjum, og er mat manna á málefnum oft álíka margbreytilegt eins og mennirnir eru margir. Menn eru líka misjafnlega vel sjáandi á ferð sinni um lífsins veg, og stund- um skortir vakandi vilja til að sjá það, sem við augum blasir. Ég veit ekki, hve margir gestir, sem í Skál- holt koma veita húsunum vestur á ásnum eftirtekt. Og þótt þeir geri það, hve margir spyrja þá um það, hvers konar hús þetta séu og hvaða starf fari þar fram. Sumarbúðastarfið er mjög merki- legt og gagnlegt uppeldisstarf. Á engan hátt er jafnauðvelt að leiða börn á Guðsvegu eins og úti á gró- andi jörð. „Grösin og jurtir grœnar" eru hin mikla biblía, sem hœgt er að lesa óendanlega og er á hverju vori ný dásamleg opinberun frá hendi lífs- ins herra. Þá er gott að kenna börnun- um þessa gömlu góðu vísu: „Þótt kóngar flykktust allir að með auð og veldi háu, þeir megnuðu ei hið minnsta blað að mynda á blómi smáu." í sambandi við sumarbúðastarfið, ganga börnin oft í þetta hús á Guðs síns fund. Ég held, þó að ég geti ekki sannað það tölulega á þessari stundu, að í þessari kirkju séu haldn- ar fleiri guðsþjónustur, og hér séu að jafnaði fleiri kirkjugestir en í nokkurri annarri kirkju í sveit á íslandi, og a það vel við. Hér er því líf og starf, það er raunar meira sumarstarf en vetrar. Vetrarstarfið kemur með hin- um nýja Skálholtsskóla. Suma menn hér um slóðir er lengi búið að dreymo um þennan skóla. Nú llður að því sá draumur rœtist. Fyrir 30 árum var talað um að byggja hér búnaðarskóla. Sú skólcþ hugmynd var borin fram af veikn von, sem varð að engu. Búnaðarskóld verður að koma á fót á Suðurlandi- það hefur dregizt of lengi. En þa^ skortir ekki stað fyrir hann. Fyrir tœpum 45 árum, þegar mest var þráttað um staðarval fyrir ungl' ingaskóla á Suðurlandi, fór ungur maður héðan úr sveitinni á fund mik ilsráðandi manns I íslenzku þjóðl1 1 og lagði til, að nú vœri gripið tceki fœri að hefja endurreisn Skálholts, með því að byggja skólann þar. Hann tók þvl fjarri. Það vœri ekkert hofa atriði að lappa upp á gamla sögu staði. Þeir vœru eins og gamlir me^'j sem hrörna, hverfa og gleymast. Dl° frjálshuga þjóð, myndaði nýja sögu staði, það vœri aðalatriðið. 330

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.