Kirkjuritið - 01.12.1974, Síða 79
hann heima eftir það til dauðadags
í eigin húsi að Efstasundi 55. Kring-
um það hús er stór aldingarður og
taldi hann og kona hans sér það mik-
inn „yndisarð, að annast blómgaðan
iurtagarð." Enda höfðu þau gjört það
aður, því við húsið ó Setbergi var
fagur blómagarður.
Síra Jósef var gœfumaður .Hann
kvœntist Hólmfríði Halldórsdóttur 15.
iúnl 1916. Hún bjó honum gott heim-
'ii og var honum stoð og stytta í öllu
starfi hans. Hún var alla tíð organleik-
arinn við kirkjur hans, og ótti þann-
Í9 sinn þótt I því að gjöra guðsþjón-
usturnar hótíðlegar. Hún hafði aldrei
kóralbók með sér í kirkjuna, hún kunni
iagin utanbókar. Hún var og er söng-
elsk með afbrigðum.
Þeim hjónum varð 5 barna auðið.
^au eru: Halldór skrifstofumaður í
Reykjavík. Kristjana, húsfrú og ekkja
1 Reykjavík. Skafti garðyrkjumaður í
Hveragerði. Jón skrifstofumaður í
Reykjavík og Pétur kennari ó Akureyri.
Auk þess ólu þau upp að mestu
leyti bróðurdóttur frú Hólmfríðar,
Áslaugu Gunnarsdóttur.
Jó, slra Jósef var gœfumaður, hann
ótti gott heimili, og var elskaður og
virtur af öllum sóknarbörnum sínum
og samstarfsmönnum.
Guð hlífði honum við sórum sorg-
um. Konan og börnin lifa hann. Þau
kveðja óstríkan eiginmann og kœran
föður.
Fjöldi vina ó Snœfellsnesi, hér í
Reykjavík og víðar, kveður kœran vin
og vottar aðstandendum samúð og
hluttekningu.
Ég kveð kœran vin og góðan sam-
starfsmann um óratuga skeið.
Guð blessi óstvinum hans og okkur
vinum hans minningu þessa mœta
manns.
Sr. Magnús Guðmundsson, frá Olafsvík.
365