Syrpa - 01.12.1911, Síða 6

Syrpa - 01.12.1911, Síða 6
Þorsteinn Þ. Þorsteinsson: I L L A G I L. (Framhald frá I. hefti). III. Þrettíin vikur eru af sumri. Laugardagskveld er komið, með heiöskírum himni og björtu sólar- lagi. Yzt við sjóndeildarhringinn í norðri hefir þokadregið sig samanog myndað þéttan, dirnmgráan bakka, sem hvílir yfir hafinu. En dalurinn er allur roðinn gulli kveldsólarinnar og lítur svefnþrungnum, dreymandi augum upp í himinbláma hinnar ljós- ríku sumarnætur. En langt fyrir utan landamæri dalsins.grúfir þoku- bakkinn sig yfir sjóinn, grár og kuldalegur. í langan tíma hafði þokan ekki heimsótt dalinn, en nú ætlaði hún sér að koma þangað upp eftir í nótt. Túnaslátturinn var byrjaður ídaln- um. Höfðu allir verið í óða önn á Hömrum að slá og raka og þurka töðuna um daginn. Voru seinar hættur um kveklið, því Sigurður hafði það til siðs, að enda vikuna með því að vinna nokkuð lengur fram eftir á laugardagskveldin, en endrarnær, af því sunnudagur var að morgni, og flestir gátu því hvílt sig eftir alt vikustritið. Svipurinn á bónda hafði verið með þyngra móti seinnipart þessa dags. Vinnufólkiö pískraði um það sín á milli, að það mundi stafa afþví.hve seint honum þætti heyskapurinn ganga, en uppeldissystkinin, Þor- steinn og Sigríður nöfðu aðra skoð- un á yglibrún gamla mannsins og élit þeirra var rétt. Strax og þau höfðu verið búin að borða miðdegismatinn um daginn, fóru þau bæði að snúa töðunni og byrjuðu á stórum flekk sunnan í Lambhúshólnum,rétt suður af bæn- um. Voru þau i hvarfi frá bænum og vinnufólkinu, sem var norður á túninu. Lambhúshóllinn var uppá- halds staðurinn þeirra, til að leika sér á, þegar þau voru lítil. Þar geymdu þau barnagull sín ogbjuggu búi sínu í vor- og sumarblíðunni, en rendu sér á skíðum eða sleða of- an af hólnum í rökkrinu á vetrum, þegar skýðafæri eða hjarnfenni var. ,,Þessi staður er mér kærari en allir aðrir í landareigninni“, sagði Þorsteinn blíðlega við Sigríði, hætti að snúa heyinu og studdist upp við hrífuna. Sigríður hætti líka að hreyfa hrífuna, staðnæmdist við hlið hans’og horfði á hann dökkbláu augunum sínum fögru. ,, Hérna lékum við okkur börnin ‘ ‘, hélt hann áfram, ,,og manstu ekki að það var hérna, sunnan í brekk- unni, sem við kystumst fyrsta ástar- kossinum okkar?“ ,,Jú, eg man það vel. Eins vel og það hefði skeð í gær“, svaraði Sigríður alvarleg. ,,Þeim fyrsta kossi hafa líka ótal aðrir fylgt, hver

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.