Syrpa - 01.12.1911, Blaðsíða 26

Syrpa - 01.12.1911, Blaðsíða 26
88 SVRPA inn. Lét aldrei hlut minn fyrir nein- um, og haföi þaö eitt í huga, aö safna öllu því fé,sem mér var mögu legt. Og mér tólcst það. Ekki auð- fjár, en þó svo miklu, að eg vissi að það var meir en nægilegt til að kaupa Hamra fyrir. ,Eg hafði aldei Hamra augum lit- ið. Ekki einusinni stigið fæti mín- um í dal þennan. En mér var sama hvernig Hamrar litu út. Hingað fór eg ekki í auðsvon, þótt mér hafi búnast hér vel, heldur kom eg hér til að hefna mín-—eða svo hélt eg þá að minsta kosti.—Hefna mín á ætt minni, sem mér var brigzlað á, og á þeirn sem mest höfðu skapraunað mér á henni. En engan lét eg vita um fyrirætlanir mínar. Ekki einu sinni hana Ingibjörgu,eins og henni er kunnugt. Nei, eg gróf þær djúft í hjarta mér og breiddi klakablæju vetrarins yfir. ,Svokom tækifæri að kaupa jörð- ina þegar eigandinn dó, og það fyr- ir mikið minna fé en eg hafði búist við, svo fólk hélt og heldur enn, að sökum þess hafi eg keypt haua. — En þá hló mér hjarta í barmi, er eg flutti hingað, og þeir sem mest höfðu sært mig og dárað, komu og báðu mig með mörgum og fögrum orðum að vera kyrran í sveit sinni. Hvort það hefir nú heldur verið sprottið af kvíðablandinni hjátrú þeirra, sem þeir hafa ekki veriðmenn til að kæfa niður, eða þeim hefir verið eftirsjá að missa einn efnaðasta bóndann úr sveitinni, eða það hefir verið hvort- tveggja, veit eg eigi, en það veit eg, að þá var mitt að skaprauna þeim, og það gerði eg Iíka. ,Nú var eg l.úinn að hefna mín. En á hverjum? Á þeim? — Ef til vill, en mest á sjálfum mér. Ekki á hinum dftnu ættmennum heldur á hinum lifandi. Á sjálfum mér, og — ykkur. ,Klakinn í hjartanu klöknaði ekki þótt eg væri kominn að Hömrum, og til þess hafið þið fundið mest, sem sitið hér hjá mér. Ykkur hefi eg verið verstur, sem eg þó hefði átt að vera beztur. ,Kuldinn liggur í eðli einstakra manna og heilla ætta. En hann liggur raunar í landinu okkar öllu. — Birtist þar í alskonar myndum og breiðir sig yfir íslenzku þjóðina eins og dalalæðan, sem hylur sólina og heiðuna hið efra. ,En guði sé Iof,að kuldinn erloks horfinn úr hjarta mínu. —Einn dag- ur hefir gefið mér meiri hita í hjarta mitt og veitt mér sannara líf en öll mín ófarin æfi, löng eða skömm, myndi hafa megnað að geta gert. ,Við skulum láta hið umliðna vera gleymt og grafið. — Spádómarnir fornu bygðust á kuldanum — áttu klakann að hyrningarsteini. — Lát- um kærleika okkar brúa Illagll. Þá. verður ætt okkar borgið hér á. Hömrum. ,Enginn nema guð einn veit hvað eg kvaldist af angist og sjálfs-ásök- un, þegar eg sá þig hrapa, Sigga mín. Og þegar eg eins og í móðu s á þig stansa rétt fyrir ofan hengi- flugið, þá hét eg því ef þú næðist þaðan lifandi, að blessa ást ykkar Steina míns, með allri þeirri blessun sem eg á til og get beðið um. -— Eg hét því þegar eg var dreginn upp úr gjánni með þig alblóðuga í fang- inu. — Eg hét því þegar eg skildi við þig Steini minn meðvitundar- lausan, og vissi ekki hvort heldur þú mundir lifa eða deyja. Og eg hefi alt af, alt af heitið því síðan, á hverjum einum einasta degi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.