Syrpa - 01.12.1911, Page 38
100
SYRPA
Áður Robertson fór haföi Semple
í hyggju aö eyöileggja virkið Gibralt
ar. Var Colin Robertson því mjög
mótfallinn. Áleit hann, sem varö,
aö ílt eitt myndi af hljótast. Þetta
lét Semple sem vind um eyru þjóta
og jafnskjótt og Robertson var far-
inn, lét hann rífa niður virkiö og
fiytja timbrið til Fort Douglas og
endurbæta með því virkið. Sama
var gjört við Pembina. Var virki
Norðvesturfél. rifið til grunna og
dyttað að húsum nýlendunnar með
viðunum. Einnig voru vistir félags-
ins notaðar í þarfir nýlendunnar.
Leiddu þessar aðgerðir til þess
stærsta óhapps sem henti nýlendu-
menn.
Það er lítill efi á því,að Norðvest-
urfél. hafði ákveðið að eyðileggja
bygð Selkirks lávarðar,þó það kost-
aði blóðsúthellingar. Höfðu menn
þeirra að austan mælt sér mót við
kynblendinga frá Q’Appelle og víð-
arað, undir forustu Cuthberts Grants
Áttu flokkarnir að mætast nál. 17.
júní á Rauðarárbökkum norðan við
nýlenduna. Ekki hefir sannast hvað
svo átti að gera, því skjöl flest, er
um mál þessi fjölluðu eyðilögðu fé-
lagsmenn. Verður því aðláta nægja
að segja sögu eins og hún gerðist.
Eru þó ýms atriði óviss.
Eins og nærri má geta æstust
hugar kynblendinga mjög, er virki
bar.damánna þeirra var niður brotið.
Þótti þeim sem þeirhefðumeiri rétttil
landsins en jarlinn.því mæðurþeirra
voru Indíánar og hafði þeim aldrei
verið borgað neitt fyrir lönd sín.
Fóru þeir margir saman ríðandi sem
leið liggur frá Q’Appelle niður með
Assiniboine-á að norðan. Cuthbert
Grant var fyrir förinni. Aldrei höfðu
kynblendingar látið eins ófriðlega,
máluðu þeir andlit sín og báru sig
að öllu líkar til móðuröfum sínum
en feðrum. 19. júní voru þeir konin-
ir niður undir Rauðá. Hjá Sturgeon
Creek, eða þar um bil, yfirgáfu þeir
alfaraveginn er lá niður með ánni
og riðu í tveimur flokkum þvert yfir
sléttuna og stefndu á nýlenduna.
Drengur nokkur sá til ferða þeirra
frá Fort Douglas. Kallaði Semple
menn sína rúma tuttugu að tölu út
með sér. Óvíst er að þeir hafi allir
borið vopn. Gangandí lögðu þeirá
stað áleiðis til bændabýlanna, sem
voru á þriðju mílu vegar burtu.
Brátt fóru þeir að mæta bænduni og
skylduliði þeirra.flýjandi af ótta fyr-
ir komumönnum. Sendi þá Semple
einn af mönnum sínum að sækja
smá kanónu upp í virkið. Hann
hélt áfram með flokk sínum.
Líklegast verður aldrei með vissu
komist eftir, hvað gerðist,er Semple
mætti kynblendingum. Eftir því
sem næst verður komist luku þeir
hálfhring um menn hans. Semple
lét sér hvergi bregða og spurði hvað
þeir vildu. ,,Við heimtum virkið
okkar, heimtum virkið“, svaraði
einn úr þeirra flokki. ,,Farið þang-
að“, var svar Semples. í ákafan-
um sem á öllu var, vissi enginn hver
hleypti af fyrsta skotinu. Líklega
hljóp það óviljandi úr byssu eins af
mönnum Semples. Hvernig sem
því var varið,er hitt víst,að óstjórn-
legur berserksgangur greip menn
Grants. Hann og einn eða tveir
aðrir er haldið að hafi reyntað koma
á friði. Semple og menn hans voru
varnarlausir gegn svo miklum meiri
hluta. Var hann og nál. tuttugu
manns skotnir niður. ,,Eikurnar
Sjö“ var staður þessi kallaður þar
sem Semple féll, og stendur þar nú
veglegt minnismerki.