Syrpa - 01.12.1911, Síða 60

Syrpa - 01.12.1911, Síða 60
122 SYRPA Ástkæra Carlotta mín: Et'guð gefur, að þú frískist svo þú lesir þetta, fræðist þú um alt.það hryllilega ó- lán sem mig hefir elt síðan þú lagðir af stað til Evrópu. Með þér fór sálarþrek mitt. Svo mörg atvik,svo margar óvænt- ar hörmungar liafa rænt mig vonum, að dauðinn er mér sæl lausn en engin kvöl. Eg fell með heiðri sem tierinaður, sem kongur; sigraður, en ekki drengskap ræntur. Ef böl þitt verður of þungt, ef guð kallar þig brátt til móts við mig, skal eg fyllast þakklæti til hans.sem helir leyft að við bærum svo þungt böl. Adieu, Adieu. Þinn líðandi MAX. Það er ef til vill sælt fyrir vesa- lings Carlottu að liafa aldrei getaö skiliB kveðjuorð keisara síns. Kjör hennar eru meiri harmbeiskju bland- in, en annarar vansællrar keirara- ekkju, sem Evrópa hefir ætíð minst meS meðaumkvan; borin saman við Carlottu voru síðustu ár Eugeníu Frakkadrottningar sælu stundir. Fáar sögur eru stórhryggilegri en forlög Maximiliansogdrottningar hans. Þó hafa fáir byrjað æfiskeið sitt eins bjart og fagurt. Máltækið segir að þá sem guðirnir elski leiði þeir til böls og guðirnir virtust hampa þeim Carlottu og Maximilian sem fegurstu brúðunum sínum. Enginn konungborinn maður þótti fegurri, gjörfulegri og mentaðri sn Maximilian í æsku. Gæfan brosti við honum í vöggunni og frarn á fullorðins ár. Hann var erkiher- togi og bróðir Franz Josephs Aust- urríkis keisara. Fjórtán ára fór hann í sjóliðið og er hann var tutt- ugu og eins árs var hann orðinn yf- irforingi Austurríska sjóliðsins. Hann var tungumálagarpur mikill og náttúruvísindi stundaði hann af svo miklu kappi og með svo góðum árangri að Humboldt sjálfur dáðist að honutn. Sem sjóliðsforingi kom hann í verk margvíslegum umbótum og var nafnkendur um gjörvalla Evrópu þegar hatin tuttugu og fimm ára að aldri heimsótti Leopold Belgíukonnng. Þar sá haun Car- lottu í fyrsta sinn, hina unaðsfögru konu, er leiddi hann til hærri frægð- ar en hann hafði nokkurntíman dreymt um og til eyðileggingar líka. Ef hægt var að segja um hann að þar væri sá göfugasti allra prinsa, stóð hún vissulega öðrum kóngs- dætrum framar. Hún var að eins seytján ára, há, tiguleg, fögur, enginn mátti stand- ast unaðsþokka þann er hún bar. Hún, sem og hann, var tungumála- garpur og hámentuð. Hún talaði og ritaði frönsku, þýzku, ensku, spönsku og ítölsku. Og þó hún væri ung þekti hún mikið til stjórn- vísi og stjórnmála, því frá æsku hafði hún setið á ríkisstjórnarfund- um,og heyit þjóðmálahöfðingja ráða ráðum sínum, þekti hún því vel til allra ríkismála jafnt leyndra sem opinberra. Við fyrstu fundi feldu hin konung- bornu glæsintenni ástarhug hvort til annars. Var gifting þeirra ást- um bundin,en ekki lík fiestum kvon- föngum meðal ríkishöfðingja. Hin ungu hjón reistu sér höll mikla á fjalllendu nesi við Adriahafið. Höll þessi líktistmeirálfabústaðíþjóðsögu iieldur en heimili menskra manna. Miramar var höllin heitin. Fegurð hennar var töfrandi. Hvítir mar- maraturnar, blómþakin þök og skrautlegir múrar. í kring greru blómgarðar og áldinlundir, fyrir framan lá hið spegilslétta Adríahaf, en bak við risu jökultyptir bláhnjúk- ar. En þó fegurðin töfraði,fullnægði hún ekki hinni ungu hertogafrú til lengdar. Hún þráði eitthvað stórt og mikilfenglegt. Valdaþrá og hirð- dýrð heilluðu huga hennar. Hún var því glöð við er manni hennar bauðst jarlsdæmi í Langbat ðalandi, sem þá tilheyrði Austurríki. Hann var ekki boðinu eins feginn þó hann þektist það. Honum fanst hann hafa hlotið ríkulegan skerf jarð- neskrar gæfu og þráði að eyða stund- um sínum við lestur og nám í Mir- amar. Hirð hinna ungu hjóna í Milan var.ð næstutn eins glæsileg og Vín- arhirðin sjálf. Heimboðog dans- ar rak hvað annað og þegnarnir

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.