Syrpa - 01.12.1911, Blaðsíða 62

Syrpa - 01.12.1911, Blaðsíða 62
124 SVRPA í Miramar kastala og- framkvæmdu höfðingjar Mexikana athöfnina. Keisari og frú hans gerðu heim- sóknir til hirðanna á -Englandi, Frakklandi, Belgíu og Austurríki áður en þau hófu ferð sína, sátu svo um fáar vikur í kyrðinni að Miramar og héldu síðan vestur um haf. Stórir flokkar Austurríkismanna komu til að kveðja hin ungu hjón og feldi keisarinn tár er fólk hans, sem hann var nú að yfirgefa stráði hundruðumskrautblóma á veg hans. En Carlotta tárfeldi ekki. í hennar augum var framtíðin björt og tðfr- andi og hana dreymdi ekki um hætt- ur þær er bíðu þeirra. Hún virtist skeyta því lítið.sem fram fór í kring um þau. . Hún hafði allan hugann við leeisaradæmið vestan við fjöll og höf. Á sjóferðinni eyddi hún liverri stund til að skoða landsuppdrætti af Mexico og lesa um landið, hún hugsaði mikið 'um liirðlíf og siðu, gerði reglur, sem fara skyldi eftir við hirðina og ákvað fyrirkomulag á margvíslegum veizluni og athöfn- um, er hún átti að stjórna og stýra. Allan daginn vann hún að þessu á þilfarinu ef hægt var, en stundum við skriðljós fram eftir öllum nóttum. Ekkert hafði getað verið nteir heillandi og gæfulegt, en innreið stjórnendanna í höfuðborg ríkis síns. Borgin baðaði í sólargeislunum og á strætunum voru þyrpingar fagn- andi fölks. Allir Indíánar landsins fögnuðu stjórnendunum einum munni, því þeim fanst Maximilian, ljóshærður og bláeygður, líkjast nianni þeim,er spámenn þeirra lengi höfðu lofað að korna ætti úr austur- vegi og frelsa þá frá ánauð þeirri er þeir voru undir. Sigurbogar voru reistir á strætum borgarinnar og frásvölum, þökum og gluggum veifuðu fánar og blæjur í þúsund fögrum litum. Trumbusláttur klunknahringing og kanónuskot boðuðu komu keisarahjónanna til borgarinnar. Nýju stjórnendurnir unnu brátt hylli fólksins. Árla morguns hélt keisarinn fundi með ráðgjöfum sín- um, mætti nefndum, tók móti fólki af öllum ættum og kynkvíslum, að hlýða á umkvartanir þess og reyna að koma á reglu og stjórnsemi. Þótti íbúum starfsemi hans stinga mjög í stúf við deyfð og áhugaleysi þeirra sjálfra. — Ekki stéð Carlotta lakar í stöðu sinni. Hún vitjaði sjúkrahúsa og annara opinberra stofnana og bæði klerkar og leik- menn dáðust að kappsemi hennar. Hún var þó aldrei sælli, en er hún sat á hásæti við hlið manns síns, í- klædd dýrlegum skrúða, með krónu á höfði og hlýddi á hollustueiða þegna þeírra. Um hríð var þó enm aukiðá sælu hennar,er keisarinu tók sér ferð á hendur inn í landið og fékk henni í hendur stjórninaá með- an. Stýrði hún þá fundum ráðherra,, tók höfðingja og nefndir tals og kom í öllu frarn sem reyndur og ráð- inn sljórnmálagarpur. Með áhuga þeim, sem æskunni er eiginlegur lagði hún fram beztu krafta sína til umbóta í landi því, sem þau hjón höfðu fengið til umráða, en henni tókst hvorki að frelsa ríkið,né vinna bónda sínum margþráða frægð. Það mátti segja að Carlotta væri stjórnandi ríkisins og hafði hún öll ráð í hendi sér, unz gæfan virtist alt í einu snúa að henni bakinu. Tæpu ári eftir að þau hjón kom- ust til valda, endaði borgarastríð Bandaríkjanna, en um leið og því lauk hafði það mikla lýðveldi fríar hendur, að snúa sér að málum Mex- ico. Sendu þau boð til Napoleons að vera hermanna hans í Mexico væri því til fyrirstöðu að friður gæti haldist í Norður-Ameríku. Franski keisarinn átti nú ekki nema utn tvent að kjósa: segja Bandaríkj- unum stríð á hendur, eða kalla heim: her sinn. Napoleon kærði sig ekki um stríð. Hann lofaði að kalla heim lið sitt og sendi Maximilian orð, að bezt myndi fyrir hann að snúa til Evrópu.. Það var öllum Ijóst að Maximilian hafði ekki nóg lið, nú er Frakkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.