Syrpa - 01.12.1911, Síða 64

Syrpa - 01.12.1911, Síða 64
SYRPA 126 ir liösforingjar úr þeim her tóku aö sér deildaforustn í liði hans. Juarez kom norðan frá landamær- um með fjörutíu þúsundir manna. Maximilian stýrði her sínum sjálfur og nam staðar í borginni Queretaro. Settist þá her forseta um borgina og dag hvern voru orustur háðar. Hundruð féllu af báðum flokkum og sýndi lið keisarans oft frábæra hreysti. Maximilian var jafnan sjá'.fur þar sem orustan var skæðust. Hann virtist æskia þess-að vera þar sem hættan var mest. Hann var búinn að gleyma bókumoglærdómi, sem hafði verið honum fyrir öllu og sýndi að hann var mesta hetjan í kappavali. Einn af flokksforingj- um hans bað hann að fara varlega. ,,Hugsið um það, senor“, sagði hann. ,,Að ef þér fallið förum við að berjast um forsetatignina okkar á meðal“. Um síðir bar svo við að Queretaro var svikin í hendur óvin- anna. Svo féll keisaradæmið.-—Eitt sinn er ögn bráði af Carlottu var henni sagt frá falli borgarinnar. ,, Maximilian verður drepinn“, sagði hún. „Egþekki Mexicobúa. Fáum vikum seinna var hann leiddur út úr fangáhúsinu og skot- inn, að eins klukkustund eftir að hann hafði skrifað hina ástúðlegu kveðju til konunnar, er þráð hafði vald og tign, en orðið til að eyði- leggja gæfu bæði sína og hans. En Carlotta bíður enn eftir keis- aranum. Stundum talar hún um að leggja á stað og heimsækja hann að Miramar. — Sögn gengur meðal bændanna þar í nágrenninu að um nætur reiki svipur Maximilians inn- an hinna þögulu múra hallar hans. SÖNN DRAUGASAGA. (Úr Norðvestur-Canada) R I Ð 1853, 15. marz, lézt August Richard Peers, loð- vörukaupmaður Hudsonsflóa félags- ins í Fort McPherson. Hann hafði lifað á þeim stöðvum nokkurn tíma, en áður um skeið í Fort Simpson, sem stendur nokkuð hundruð míl- um sunnar og austar. Hann hafði óskað að vera jarð- aður í Fort Simpson, en óhægt var um flutninga um þær mundir, og var líkið grafið þar sem hann dó. Haustið 1859 var afráðið, að af því skyldi verða, næsta vetur, að flytja líkið suðaustur. Mr. Gandet, sem þá var faktor í McPherson, tók að sér flutning á líkinu þaðantil Fort Good Hope(Góðrarvonarvirki),en eg lofaði flutningi á því þaðan til Fort Simpson, og er það nál. 500 mílna leið. Sökum þess, hve langt Fort Mc- Pherson liggur norður í landi, er mýrlendið þar um slóðir frosið árið um kring, þegar kemur niður úr grassverði. Og er líkið var grafið upp, reyndist það að mestu óskemt. Var það tekið úr kistunni og sleginn utan um það kassi mikill, sem svo var bundinn á hundasleða. Sökum þess, hve kassinn var þungur og fyrirferðarmikill, var þetta óþægi- legur flutningur, því ísinn á Mc- Kenzie ánni er tíðum ósléttur mjög með köflum. Fyrsta marz komst Mr. Gandet til Fort Good Hope, og afhenti mér líkið. Skömmu síðar lagði eg á stað með það, áleiðis til Fort Simp- son. Þrír hundar drógu sleðann er kistan var bundin á, og fór með þá Iroguois-Indíáni, Michel Thomas að nafni. Annan sleða höfðum við með rúmfatnaði, nesti og öðrum nauð- synjum. Sjálfur gekk eg á undan á snjóþrúgum. Færð var vond, og eftir nokkura daga ferð, og mikla erfiðisniuni, komumst við til næsta

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.