Syrpa - 01.01.1914, Síða 22
84
SYRPA
höföa og Kanaríeyjar; í Asíu I'ilips-
eyjar Sundaeyjar og nokkurn liluta
Malakka. Fyrir vestan haf réði
hann yfir auðugustu og beztu hlut-
um hins nýja heims, sem Columbus
hafði fundið. Hin víðlendu ríki
Perú, Mexicó, Nýi-Spánn og Chili
með ótæmandi námum dýrra málma
og Hispaníóla, Kúba og margar
fieiri Vesturheimseyjar lutu Spáni.
Filipus hafði að vísu orðið fyrir
þeirri niðurlægingu, að sj* íbúa
Niðurlandanna rísa upp gegn sér;
og honum tókst ekki að komaundir
veldissprota Spánar öllum löndum,
sein faðir hans hafði eftirlátið hon-
um. En hann hafði sigraö margar
borgir og héruð, sem fyrst hófu
uppreisn gegn valdi hans. Belgía
var enn þá undirgefnari Spáni en
hún hafði verið fyrir uppreisnina.
Það var að eins Holland ásamt sex
nyrðri ríkjunumi),sem enn þá barðist
móti honum. Hann hafði eignast
öflugan og þaulvanan her á sína
hlið í þessum ófrið, sem hinn ágæti
yfirherforingi hans, prinsinn af
Parina, hafði a^ft í því að halda fast
saman í öllum erfiðleikum og þraut-
um á herferðunum. Stöðuglyndi
og drottinhollusta hersins voru svo
mikil, að óhætt var að treysta hon-
um í öllum fyrirtækjum, hversu
erfið og þreytandi sem þau voru.
Alexander Farnese, prins afParma,
yfirherforingi Spánar og landstjóri
á Niðurlöndum, var hinn lang-
snjallasti herforingi.sem þávaruppi
Hann var einnig alþektur fyrirstjórn-
i) Niðurlöndin skiftust í i7 fylki, þau
hötðu öll Iotið Karli fimta fööur Filip-
usar, en hófu uppreisn gegn Filipusi. AS
eins sjö þau nyrstu héldu út í uppreisnar-
baráttunni undir stjórn Vilhjálms þögta
og kornust þá undnn Spáni.—ÞýS.
kænsku sína og dugnað. Hermenn
hans trúðu á hann, og hann hafði
lag ít aö ná hylli þeirra ftn þess að
draga úr heraganum eðagefanokk-
uð ef'tir af valdi sínu. Hann var
rólegur og aðgætinn í öllum ráða-
gerðum, snarráður og fylginn sér,
þegar þurfti að sækja með kappi,
sá við öllum áhættum, sem var-
færni gat sneytt hjá; hann gerði
menn sátta við sig, jafnvel í þeim
héruðum, sem hann réðist á, með
orðheldni, sinni, varfærni og við-
móti; hann var hinn æg'legasti hers-
höfðingi, sem hægt var að setja yíir
her, er átti eklci að eins að vinna
sigur í orustum, heldur einnig að
leggja lönd undir sig. Það var lán
fyrir England og heiminn að hon-
um gafst ekki færi 4 að sýna krafta
sína á brezku eyjunum.
Það sem Spánn hafði mist á Nið-
urlöndum virtist meira en að fullu
bætt, er Portúgal var unnið 1580.
Hið forna konungsríki með öllum
árangrinum af dugnaði Portúgais-
manna á sjónum komst í hendur
Filipusi; allar nýlendur þess í Am
eríkti, Afríku og á Indlandseyjum
gengu honum á hönd. Þannig var
allur Pýrenaskaginn sameinaður
undir stjórn hans, og hann hafði
eignast ríki fyrir handan höfin, sem
var litlu minna en það sem hann
tók að erfðum. Sigur sá, sem fioti
hans, ásamt galeiðum páfans og
Feneyinga vann í orustunni við
Tyrki við Lepanto1), bar orðstýr
spánska fiotans út um öll kristin
lönd; og þegar Filipus hafði setið
að völdum í þrjátíu og fimrn ár
virtist veldisstyrkur hans vera ó-
bugaöur og herfrægð Spánar óðum
að aukast út um allan heirn.
i) á Grikklandi.—Þýð.