Syrpa - 01.01.1914, Page 58

Syrpa - 01.01.1914, Page 58
120 SYRPA hann sjá, aö kona sú tilheyrði eigi mensku sau'ðahúsi. Nú sá hann, að sér mundi gefast tækifæri að kynnast jjessari undra kynslóð, er hann svo mjög hafði deilt um hingað til. Hann fylgdi henni heim. Fyrst í stað sá hann ekki annað en grábláar klappir, vindsorfnar og sundur rifn- ar. Hún dró upp lítinn silfurbúinn sprota úr vasa sínum og laust á berg- ið. Það laukst upp skyndilega, og þá sá Hallur að þetta var snotur bygg- ing, en ekkert klappa-klungur. Inni blöstu við tveir bjartir og skrautlegir salir, hvor innar af öðrum. Innra húsið var svefnhús og stóð þar rúm snyrtilega uppbúið. Hitt var setuher- bergi með borði og stólum. Hún bauð Halli til sætis og framreiddi vín á gullrendum silfurbikar. Þar eftir tók hún aö ræða við hann á þessa leiS: “Fanstu nokkúS óvanalegt við hönd mína, Hallur?” “Já,” mælt hann; “hún var heit eins og eldur.” “Veiztu orsökina?” sagSi hún bros- andi. “Nei,” mælti Hallur; hana veit eg ekki; og líklega enginn af okkar kyni.” “ÞaS er sennilegt,’ mælti hún. “En þótt við séum líkamlegar verur alveg á sama hátt og þið mennirnir, þá er- um við samt að ýmsu leyti sem annað kyn. Þessi hiti kemur eigi ávalt fram, þótt við huldubúar kynnumst einhverjum af ykkar kyni. Þessi hiti kemur frá voru andlega lifi. Við stjórnum honum sjálfir, og því verð- ur hans enginn var nema sá maður af ykkar ættstofni, er við viljum kom- ast í náio og innilegt samband við. Hann kemur fram, meðan það innra og hið ytra náttúrueðli vort er að sameinast ykkar, sem að ýmsu leyti er okkar andstætt. Eftir að svo er komið, dyljumst vér ekki lengur fyr- ir þeim manni og getum það jafnvel ekki, nema vér neytum til þess sér- stakrar kunnáttu og listar. Fyrir þeim mönnum standa okkar leyndar- mál opin þaðan í frá.” “Er það satt,” mælti Hallur, “að þið huldumenn séuö runnir frá sama stofni og vér? Það hafa gengið um það óljósar sagnir meðal vor, sem enginn tekur þó mark á nema þeir, scnr vér köllum hjátrúarmenn.” “Já,” mælti huldukonan. “Enda þótt þiö trúiö því ekki, þá er þaö sannleikur samt. Það kemur af hinni takmarkalausu oftrú á vitsmunum yklcar. Þið haldið, að alt sköpunar- verlc guös standi ykkur opiö, að minsta kosti það, sem lykst innan vi'ö ykkar sjóndeildarhring, og þar sé ekkert annað til en það sem þið sjáið. Þið og við erum eins og tveir meið- ir er hafa vaxið upp frá sömu rót- inni. Frá upphafi lífsins höfuð vi'ö átt samleið gegnum allar aldir, og þó ykkur alveg óafvitandi. Þið menn- irnir hafið stundum staðið okkur framar í ýmsu, en þó ekki nema því náttúrlega; því andlega yfirburöi höfum vér ávalt átt í ríkum mæli. Og þaö er þcssum andlegu yfirburöum vorum að þakka, að vér höfum ávalt getað dulist fyrir ykkar augum, en getum þó gert okkur sýnilega tf vér svo viljum. Þess vegna höfum vér ávalt getað lifað í friði fyrir ykkar árásum; en annars myndi það hafa oröiö næsta torvelt, ef ekki allsendis ómögulegt. Ýmislegt höfum við getað hagnýtt okkur af ylckar kunnáttu, en af vorri þckking hafið þið ekkert fengið, Viö

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.