Syrpa - 01.01.1914, Page 66

Syrpa - 01.01.1914, Page 66
128 SVRPA Kókúa svaraði ekki cinu orði. . Hún liló sífellu og starði út á sjóinn. ,,Þögn þína tek eg sem vilyrði, Kókúa,“ sagði Kifi; ,,nú skulum við fara heim til föður þíns. “ Kókúa hélt af stað, og gekk á undan honum, steinþegjandi, og hafði hattbandið sitt á milli var- anna. Hún leit að eins öðru livoru um öxl sér, en Ieit svo óða.ra undan aftur. Þegar þau voru komin heim að húsi Kíanos, kom hann út á sval- irnar og heilsaði Kífa meo nafni. Kókúa leit upp snögglega og á Kífa. Hún hafði he)rrt getið um hann og fallega húsið hans og það var sannarlega freistandi fyrir hana. Þau skemtu sér vel síðari hluta dagsins, og Kókúa var djörf og gáska full í viðurvist foreldra sinna og gerði að gamni sínu við Kífa, því að hún var mesti æringi. Daginn eftir talaði hann við Kí- ano, og síðar við meyna sjálfa í ein- rúmi. ,,Þú dróst dár að mér í gærkveldi, Kókúa,“ mælti hann; ,,það er nóg- ur tími enn fyrir þig, að vísa mér á bug. Eg vildi ekki segja þér, hver eg var, af því að eg á svo fallegt hús og óttaðist, að þú myndir, ef til vill, lnigsa meira um það en sjálfan manninn, sem elskar þig af öllu hjarta. Nú veistu alt saman og ef þú vilt ekki sjá mig framar, þá segðu mér það samstundis. “ ,,Nei,“sagði Kókúa og hlátur- inn var horfinn af andlitinu; en Kífi spurði einskis framar. Þetta var bónorðið. Það stóð ekki lengi á því. Örin fiýgur hratt og bissukúlan ennþá hraðara, en en þó hæfa báðar markið. Þetta hafði gerst í einu vetfangi, en það átti sér djúpar rætur, engu að síður. Kókúa hugsaði sífelt um unnust- ann sinn; hún heyrði rödd hans í brimhljóðinu, sem barst neðati frá sjónum upp yfir hraunklettana. Hún mnndi hafa viljað yfirgefa for- eldra sína og fæðingarstað vegna þessti unga manns, sem hún hafði ekki séð nema tvisvar sinnum. Kífi keyrði hestinn sporum, og reið svngjandi á harða spretti upp fjallveginn neðan undir klettunum og hófaskellirnir og söngurinn berg- máluðu í grafhvelfingum hinna framliðnu. Svona hélt hatin áfram alla leið heim ;ið húsi sínu; og síðan settist hann að smæöingt upp á svölunum. Kínverjinn starði á hann undrandi, því að hann söng stöðugt, milli þess sem hann lét upp í sig munn- bitana. Sólin gekk til viðar og náttmyrkr- ið færðist yfir, en Kífi gekk um gólf á svölunum; lampaljósið varpaði skugga hans hátt upp í fjalshlíöina, og sjófarendurnir, sem sigldu fram hjá, hlustuðu undrandi á sönginn. ,,Hér eftir ætla eg að búa hérna uppi“, sagði hann við sjálfan sig. ,,Lífið getur ekki verið skemtilegra; — eg er kominn upp á fjallstindinn — og alt leikur mér í lyndi. Nú ætla eg að láta kveikja ljós í öllum herbergjunum í fyrsta skifti, og svo ætla eg að lauga mig í fallega bað- húsinu mínu, bæði í heitu og köldu vatni, og sofa svo einn í nótt í hjónasænginni“. Hann gerði Kínverjanum aðvart og hann varð að fara upp úr rúm- inu, til þess að kveikja upp í ofn- unum. Meðan hann sat, og beið eftir því, að vatnið hitnaði í kötlun- (Framhald)

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.