Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Page 47

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Page 47
N. Kv. DYVEKE 33 ekki fara beina íeið til Kaupmannahafnar og konungsins. Sigbrit rölti við staf sinn um allan garðinn og lét Hans Faaborg sýna sér allt, en aldrei svaraði hún smjaðuryrð- um lians einu orði. Hún lét leiða þernur og húskarla fyrir sig og virti þau fyrir sér livössum augum. „Nú megið þér fara,“ sagði hún við Hans Faaborg. Svo benti hún á einn húskarlinn: „Farið með liann þenna; mér lízt ekki á smettið á honum. Og segið svo hans náð, að Sigbrit Willums bíði hans.“ Dyveke sat í herbergi því, er henni var ætlað, og horfði út í rúðuna. Tárin runnu í sífellu niður kinnar hennar. Hún leit varla á dýrmæt húsgögnin, hugsaði aðeins urn húsið sitt við Ósló og kveið komandi dögum. Hún vissi ekkert, hvar konungur var eða hvenær liann mundi koma. Hún þekkti ekkert af fólki því, sem hún nú átti að vera samvistum við. Henni stóð smeðju- legt andlitið á Hans Faaborg fyrir hug- skotssjónum og skildi ekkert í, að konungur skyldi senda slí'kan mann til að taka á móti henni. Þá lieyriðst hófadynur að utan, og hún sá riddara og nokkra sveina fara af baki í húsagarðinum. Hún heyrði raddir, sem hún kannaðist ekki við. Aftur bugaðist hún af þungum hugsunum, en svo var liurðin opn- uð, og Edle kallaði á hana kát og glöð: „Dyveke! Það er einn af hirðmönnum konungs, sem langar til að heilsa okkur. Eg skal segja þér, Dyveke — eg hef aldrei á ævi ntinni séð eins fagran riddara.“ Dyveke fór fram til þeirra, og þar stóð Torben Oxe eins og hann vaeri heima hjá ser, með pellhúfuna á höfðinu og sneri upp a ofrivarar-skeggið. Þegar hann sá Dyveke, r;tk hann í rogastanz vegna fegurðar lienn- ar> lineigði sig til hálífs, eins og honum væri það þvert um geð, tók ofan liúfuna og setti i O 7 O nana svo upp aftur. »Þér megið gjarna taka ofan liúfuna, lierra Torben, ef sá er siður í Danmörku,“ mælti Sigbrit, sem sat á hægindabekk í horninu og studdi hökunni á stafinn. „Þessi unga stúlka er dóttir mín, en hin er dóttir lénsmannsins á Björgvinjarhúsi, herra Jörg- ens Hansens, ef þér kannist við hann.“ Torben Oxe tók ofan húfuna og hneigði sig eins kurteislega og hann gat, en var þó í bobba. Feginn Iiefði hann viljað, að hann liefði ekki komið svona hranalega fram í fyrstu; svo gat liann ekki varizt því að stara á Dyveke; svo fögur var luin og svo rauna- legt var augnaráð hennar. „Þá kemur röðin að mér,“ mælti Sigbrit. „Eg heiti Sigbrit Willums, skal eg segja vð- ur. Þér segist vera hirðmaður konungs; haf- ið þér nokkur skilaboð frá hans náð?“ „Nei,“ svaraði Torben; „lians náð er ekki ennþá kominn til borgarinnar. Eg vissi ekki heldur, að þér eða hin fagra dóttir yðar vær- uð hingað komnar. Eg reið hingað eftir beiðni Esge Bildes til að grennslast eftir, Iivort allt væri hér viðbúið komu ykkar.“ „Þá getið þér riðið héðan aftur með góðri samvizku," sagði Sigbrit. „Hér er einskis í vant, nema lians náðar, og hann kemur vafa- laust. Torben Oxe hneigði sig nú mjög svo hæversklega fyrir Dyveke og Edle og reið af stað þaðan. Á leiðinni þeysti hann fram hj;i þeim Hans Faaborg og Hrólfi Madsen. Ritarinn kallaði til lians: „Sáuð þér frillu hans náðar, Torben?“ Torben Oxe leit háðslega á ritarinn og svaraði engu. „Stórbokkalega ber hann sig á hestbak- inu,“ mælti ritarinn, „en ekki er örvænt urn, að hann eigi eftir að sitja lægra.“ Daginn eftir kom koraungur til borgar- innar og frétti þegar, að Dyveke væri kom- in. Hann reið þaragað jafnskjótt sem hann liafði haft fataskipti eftir ferðalagið, og Dyveke hljóp á móti honum nteð háu ópi, tók um liáls honum og grét og hló. „Dyveke — litla dúfan mín,“ sagði hann. 5

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.