Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Page 52

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Page 52
38 DYVEKE \T. Kv. framtíðin er tryggð, þá fyrst munuð þér geta stjórnað þessum ríkjum með dug og dáð.“ Kristján konungur horfði fast á gamla kanslarann. „Skyldu konungsins,“ mælti liann, „getur hver ráðgjafi hans þvaðrað um.“ „Rétt er það, yðar náð,“ svaraði Ove Ifilde. „Við getum orðað skylduna, en kon- ungurinn einn getur framkvæmt hana.“ • Diðrik Slaghök, sem var ritari konungs og hafði því verið á fundinum, fór með kon- ungi. Þegar dyrunum var lokað í milli. gekk konungur stundarkorn um gólf með hend- urnar fyrir aftan ltakið. Hann gleymdi því að ritarinn var þar, og gat Diðrik því í næði athugað skuggann á andliti lians og getiðsér til hugsananna, sem að baki þeirra lágu. Hann dirfðist ekki að taka t il máls, en brann a£ löngun eftir, að konungur yrti á hann. Loksins tók konungur eltir því, að hann var ekki einn. „Eftir hverju eruð þér að hlera, meistari Diðrik?“ mælti hann hranaleaa. o „Eg bíð eftir skipun yðar náðar, livort eg eigi að gera meira eða ganga til herbergis míns,“ svaraði Diðrik. „Hafið þér herbergi hér í höl 1 inni?“ 'Spurði konungur. „Eg liélt eg liefði mælt svo fyrir, að ritari minn ætti að búa úti í borg- inni.“ „Hirðmeistarinn hefur brugðið út af ven j- unni,“ svaraði Diðrik; „hann taldi réttast, að hér væri alltaf einhver okkar við. ef yðar náð þyri’ti á okkur að Iialda.“ „Þá fáið þér auðvitað fæði af borði voru?“ mælti konungur. „Eg þakka yðar náð fyrir það.“ „Auðvitað gerið þér það, meistari Dið- rik,“ mælti konungur og hló; „en þér megið þakka sjálfum yður fyrir það, því að sjálfur hafið þér komið því í kring. Þér komizt langt, ef þér getið forðazt. gálgann, en það 'skal eg segja yður. að smettið á yður er ekki ;i marga fiska.“ ,,Eins og yður þóknast," mælti Diðrik með sömu auðmýktinni. „Verið getur, að andlit- ið á mér endurspegli svipbrigði háu herr- anna í ráðinu. Það var afbragð að sjá þá og heyra þá segja hvern \ ið annan allt það, sem þeir þorðu ekki að segja \ ið yðar náð.“ ,Hver skrambinn," mælti konungur. „það er þá háskalegt andlit, sem þér hafið, eftir ]i\ í sem þér segið." „Það er aðeins eitt af andlitum mínum. yðar náð,“ svaraði Diðrik. „Spegli andlit mitt svipbrigði hinna, þá er það líka skjöld- iur og fylgsni eigin liugsana minna.“ „Rétt er það,“ mælti konungur; „sannar- lega verðum við að neyta yfirdrepskapar, ef við eigum að ná markinu, svo vondir sem mennirnir eru. Mér virðist þér vera dugnað- armaður. Ef eg veitti yður eina ósk, hvers munduð þér þá óska af mér?“ „Eg mundi óska erkibiskups-stöðunnar í Lundi,“ svaraði Diðrik Slaghök hiklaust. Konungur starði á hann; svo skellti hann upp úr, en varð snögglega alvarlegur aftur. „Hver veit?“ rnælti hann. „Þér eruð klerk- lærður, og eg þarf á tryggum þjóni að lialda þar fyrir handan.“ „Eg er magister og doktor í guðfræði,“ svaraði Diðrik. „Ekki skortir á lærdóminn, og eg mtrndi fljótlega komast upp á að halda liðsmenn og gera uppreisn á móti lands- drottninum." „Þér eruð kjaftfor, þykir mér,“ mælti kon- ungur; „þáð leynir sér ekki, að þér eigið Sigbritu að móðursystur.“ Hann benti Diðrik að fara, en svo þóttist hann sjá eitthvað grunsamlegt í svip hans. „Diðrik SIaghök,“ mælti liann. Ritarinn dokaði auðmjúkur við. „Farið Keint til Sigbritar og segið henni, að innan áramóta gangi eg að eiga F.lísabetu frá Burgund.“ „Hvernig getur yðar náð búizt við, að eg segi eftir það, sem eg hef Iieyrt í ríkisráð- inu?“ svaraði Diðrik móðgaður; „þá væri eg meinsærismaður.“ „}æja,“ mælti konungur þurrlega; „ef þér

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.