Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Qupperneq 54

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1947, Qupperneq 54
40 DYVEKE N. Kv. „Flýtið yður, frænka----flýtið yður,--- hvernig á eg að sleppa út?---Ef konungur verður mín var,-----þá er úti um mig;----- flýtið yður, frænka!“ „Vitleysa er í þér!“ svaraði Sigbrit. „Eg get ekki falið þig og vil það ekki heldur. Hvað gerir til, þó að konungur sjái þig hér hjá mér?“ Diðrik tifaði um og spennti greipar, ful!- ur skelfingar. „Það er enginn tími til að skýra frá því, Irænka. Konung grunaði — — að eg segði frá; felið mig---í guðs bænum; liann lof- aði mér erkibiskupsstóli í Lundi,------- líf mitt er í veði, — — eg heyri til lians frammi — —. „Erkibiskupsstóli í Lundi?“ Sigbrit starði á hann; hún var orðlaus af geðofsa. Svo reif liún opna liurðina á stór- um skáp, sem stóð þar, Diðrik smeygði sér inn í hann, og hún sparkaði á eftir hon- um, svo að hann hrataði við, skellti hurð- inni í lás og stakk lyklinum í vasa sinn. Ef konungur iiefði ekki verið niður- sokkinn í liugsanir sínar, hefði ekki hjá því farið, að hann hefði tekið eftir geðróti Sig- britar. En Iiann tók ekki eftir neinu, sett- ist á stól og starði fram undan sér. „Hvernig líður Dyveke?“ spurði hann. „Hún er með höfuðverk og lagði sig út af,“ svaraði Sigbrit. „Ef yðar náð þóknast, þá lofið henni að sofa um stund.“ „Eg ætla ekki að ónáða hana,“ mælti kon- ungur. „Lofum lienni að sofa úr sér. — Eg kom í dag til að tala við yður, Sigbrit, og vita, livort þér gefið mér ráð við því, sem að mér gengur.“ „Er gigtin að þjá yður?“ spurði hún. „Eg á enn eftir áburðinn, sem bezt dugði í Ósló.“ „Nei,“ svaraði konungur, „við því dugir enginn áburður." Hann sat þunglamalega í stólnum, og lnin horfði á hann. „Svo langt er nú komið, Sigltrit, að ráð- herrar mínir krefjast þess, að eg taki mér drottningu,“ mælti hann, „og eg veit ekk- ert, hvernig eg á að komast hjá því.“ „Að því hlaut að koma,“ svaraði Sigbrit með Iiægð. „Konungur verður að eiga drottningu. Hvers vegna ættuð þér þá ekki að gera það h'ka? Eða ætlið þér að láta Frið- rik hertoga erfa ríkin?" „Þetta segja þeir líka, og eg sé, að þeir hafa á réttu að standa,“ mælti hann; „með- an eg á engan erfingja, brugga Gottorp- arnir mér svikráð, og andstæðingar mínir liahast á þeirra sveif.“ „Víst er um það,“ mælti Sigbrit, „þér verðið að taka yður drottningu. Er það þess vegna, sem yðar náð drúpir höfði? Skrýtið þyki mér það, því að nóg er urn ungar og laglegar prinsessur, sem gjarna mundu vilja fá hlutdeild í konungstigninni. Yðar náð er snyrtimenni og drottinn í voldugu ríki.“ „Og þetta látið þér yður um munn fara,“ mælti konungur. „Hvað ætti eg annað að segja?“ spurði hún. „En Dyveke,“ mælti liann, „hugsið þér ekkert til hennar? Vitið þér ekki, að eg ber sömu ást til hennar nú eins og þegar eg sá liana í fyrsta skipti?“ Sigbrit ýtti sér óþolinmóðlega í sætinu og leit hálfgerðum óvirðingaraugum á kon- ung. Hann leit undan og kveið fvrir því, sem hún mundi segja næst. En hún talaði stillilega og Hlíðlega við hann, rétt eins og luin væri móðir lians. „Svona megið þér ekki tala, yðar náð, og allra sízt við mig,“ liélt hún áfram. „Þér enið enginn ástsjúkur hirðsveinn eða man- söngvaskáld. Þér eruð konungur yfir Norð- urlöndunum þremur og hafið öðru starfi að gegna en að kurra við litlu dúfuna yðar. Þegar þér hafið gegnt konungsskyldum yðar, þá getið þér kurrað eftir vild, en ekki fyrr, — og þér verðið að gegna því, sem yðar háa staða krefur. Haldið þér, að eg liafi gengið að því gruflandi, að þér yrðuð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.