Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Blaðsíða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Blaðsíða 9
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 3 inn.... Ja, hvað var að gera. Þarna komu hinir hlaðnir að landi, og það var eigin- lega ekki nema eðlilegt, að hásetarnir hans gætu ekki sætt sig við þetta sarg. Þeir voru fátækir barnamenn. Það var hverju orði sannara. Og hafði hann nú efni á að hætta? Skuldaði hann kannske ekki ennþá eftir skellinn, sem hann fékk fyrir að ábyrgjast lán, sem kaupmaður- inn tók í öðrum þessum félagabanka, sem buið var að tildra upp? Og hafði ekki konan drifið bæði börnin á skóla?... 0, það var sárgrætilegt alt saman... Nei, hann rnátti síður en svo við því að tapa svona afla. Hann varð, hann varð að hætta á það að breyta til. Það gat ekki hjá því farið, að þeir gömlu sæju það, ef þeir höfðu annars auga með honum, að honum var nauðsyn að breyta til. Eyjólfur rétti úr sér og leit á Jón. Varirnar bærðust, en hann sagði ekki neitt, en lét höfuðið síga á ný ofan á bringuna. Þannig stóð hann nokkur augnablik. Svo leit hann upp og ræskti sig. — Við beitum nokkrar lóðir í kvöld og köstum þeim inn í Djúpið um leið og við förum á Miðið í fyrramálið, sagði hann,. og rómurinn var lítið eitt annarlegur. — Jæja, það er okkur nóg, mælti Jón. Eigum við að setja áður en við borðum? Eg sé að konan kemur þarna með matinn. II. Kl. 4 um nóttina fóru þeir á sjóinn og höfðu með sér átta beittar lóðir. Lögðu þeir þær inni í Djúpi og fóru síðan og drógu lóðirnar á Steinmiðinu. Jón dró þær þögull ofan í rúmið, spurði Eyjólf ekki einu sinni að því, hvort ætti að beita þær út. Og Eýjólfur lét atferli hans af- skiftalaust. Voru og aðeins á lóðúnum fá- einar smáýsur, nokkrar tindabykkjur og þrír háfar. Þegar lokið var drætti lóðanna á Mið- inu, var róið inn í Djúp og byrjað að draga þar. Var nú fiskur við fisk á lóð- inni, og hýrnaði heldur yfir hásetunum. — Eyjólfur! Hann er ekki Ijótur þessi! sagði Jón og brá á loft stærðar þorski. — Það er ekki kalýsa þetta! sagði Guð- mundur og tók í greip sína stóra ýsu. En Eyjólfur sat brúnaþungur við beit- inguna og mælti ekki orð. Veður hafði verið kyrt og fagurt, en þá er hálfdregnar voru lóðirnar í Djúp- inu, tók að vinda. Kaldleg ský komu á norðurloftið, og snarpar hviður skutiist úr hvylftum og da.lverpum. Svo sló í logn, og sjórinn varð sléttur á ný. En ekki leið á löngu, unz aftur komu hviður ofan af norðurströndinni, og voru þær nú snarp- ari en áður. Krappar vindöldur skullu á bátnum, og ýrði úr földunum inn í bark- ann. — Hvað er þetta, Bjarni! Geturðu ekki passað ástöðuna? kallaði Jón. Það er alt undir kjöl! — Sérðu ekki, að eg ræ eins og eg get? Það er komið samsaxveður maður. Þú getur svo sem komist í andófið fyrir mér, ef þú heldur þú gerir betur! — Andæfðu með honum, Gummi, sagði Eyjólfur stillilega. Guðmundur hætti beituskurðinum og færði sig frain í hálsrúma til Bjarna. Enn þá jókst vindurinn, og sást nú rok- ið hvirflast fram og aftur yfir undir norð- urströndinni. Gilda úthafsöldu lagði inn fjörðinn, og til og frá sást glytta í fann- hvítt brot. — Sjáið þið nú ástöðuna! Lóðin stend- ur langt út í sjó, og fiskur svo að segja á öðrum hvorum öngli! Jón var ærið hast- ur í máli. — Við róum eins og við getum, kallaði Guðmundur. En þetta er að verða drifa- veður — og hafsjórinn eftir því. l*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.