Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Side 14

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Side 14
8 NÝJAR KVÖLDVÖKUR Illviðrum kalin áttu samt falinn lífgjafar neista frá eilífðar-æð. Æskunnar þori aftur að vori þú uppríst úr efnisins smæð. Sveipast þá særinn sólrún, og blærinn vermir þig unga svo viðkvæmt og blítt. Fuglarnir kliða, fossarnir niða og alt brosir unaði skrýtt. Rökkvar í lundi, rennur að sundi sólin sem áðan við hlíðinni hló. Minningar gieði, moldar á beði ó, sofðu nú rós mín 1 ró! Brimrastir hníga. — Bænir þjer stíga Drottinn! á tónöldum titi'andi hljóms. Heims yfir tíðir hylli þig. lýðir, sem talar í brosi hvers blóms! Ásm. Eiríksson. L a M a f i a. Saga eftir Rex Beach. ~ (Frh.). XIII. KAFLI. Blóð forfeðra hans. Embættismenn og blaðamenn kornu og fóru, lögregluþjónar og leynilögreglu- menn gáfu skýrslur og tóku við fyrirskip- unum og þó fylti öll þessi framtakssemi hann með haturskendri óþreyju. Honum fanst þeir allir vera ráðalausir og óhag- sýnir. Enda þótt hann væri sjálfur mjög harmþrunginn efaðist hann um, að nokk- ur annar skyldi hve alvarlegur atburður hafði gerst. Hann flýtti sjer eins og hann gat til ö’Neil, ettirmanns Donellys, og sat hann þá á ráðstefnu hjá borgarstjóranum. Andartak hlustaði hann á þá, en strax og hlje várð á samræðunum mælti hann: »Segið mjer — hvað er gert?« O’Neil, sem ekki virtist hafa tekið eft- ir komu hans, svaraði:' »Við látum leita í bænum«. »Auðvitað. Hafið þið handtekið Laru- bio, skósmiðinn?« »Nei!« Báðir mennimir horfðu eftir- væntingarfullir á Blake. »Gerið það þá undireins. Handtakið hann og allá vini og kunningja hans. Leit- ið eftir manni í gummifrakka. Emxfrem- ur er 14 ára gamall drengur. Hann lá í leyni við húshornið. Jeg geri i-áð fyrir að hanxx hafi verið varðmaður þeirra, að minsta kosti veit hann eitthvað«. O’Neil rissaði eitthvað á blað meðan Norvin skýrði frá því hvernig morðið hefði verið framið, en svo var kallað á haixn — áður en frásagan var búin.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.