Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Síða 25

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1929, Síða 25
NÝJAR KVÖLDVÖKUR 19 Nell kynni að hafa fundið upp á. Brjefið hljóðaði svo: »Jeg sendi þjer þetta með trúnaðar- 'manni mínum og vona að þú fáir það nógu snemma. Jeg er fangi. Jeg er í lífs- hættu. Jeg er hrædd um að fegurð mín sje eyðilögð. Ef þjer þykir vænt um mig, þá komdu. Þín örvæntingarfulla Myra Nell«. Brjefið var skrifað í húsi í Esplanade- stræti. »Hver bað þig fyrir þetta?«, spurði hann svei-tingadrenginn. »Það var stúlka, sem kastaði því út um glugga«. »Hvar — hvar var hún?« »f stóru húsi í Esplanadestræti. Svo virtist, sem henni þætti eitthvað miður. Svo kom maður og barði mig burtu með priki«. Andartaki síðar var Blake kominn nið- ur á götu og kallaði á vagn. Sú hugsun, að Myra Nell væri í hættu, tók hann afar sárt. Fegurð hennar væri eyðilögð! Alt í einu þótti honum svo vænt um hana og hann var öskuvondur yfir því, að nokkur skyldi gera henni mein. Hann hafði megnan' hjartslátt, þegar vagninn staðnæmdist í Esplanade stræti og hann var kominn að húsinu. Fullur kvíða sá hann mann einn hlaupa heim að húsinu; hann stökk út úr vagninum og reyndi að verða á undan honum að götu- dyrunum. XV. KAFLI. Hvemig leit hrnis lauk. Orðrómurinn um ógæfu Myra Nell hafði bersýnilega borist fleirum til eyrna. Neðan undir opnum glugga stóð hópur ungra manna, sem virtust vera í æstu skapi. Nokkrir stundu, eins og eftir mikla áreynslu. Ungur, franskur Kreóli, Le- compte Rillean, lá endilangur á grasbeð- inu annaðhvort illa særður eða viti sínu fjær. Hann lyfti þó hendinni til hinna ný- komnu eins og hann væri að eggja þá tíl árásar. Alir reyndust menn þessir gaml- ir aðdáendur Myra Nell — bómullarkaup- menn, verslunar- og bankamenn. Norvin Ijetti, er hann sá og þekti þá. »Guði sje lof að þið kornuð hingað nógu snemma! Hvað hefir komið fyrir hana?« Raymond Cline fór að tala, en um leið heyrði Blake, að unga stúlkan kallaði á hann svo hann leit upp og þá sá hann andlit hennar í glugganum, umkringt rauðum rósum, er vöfðust um gluggaum- gerðina. »Myra Nell! Þú ert örugg«, hrópaði hann skjálfandi. »Hver hefir unnið þjer mein?« Hún bi'osti aumkunarlega og hristi höfuðið. »Það var fallega gert af þjer að koma. Jeg er lokuð inni«. »Lokuð inni?« Noi’vin horfði á hina ungu mennina. »Komið þið, við skulum ná henni út«. En Murray Logan reyndi að sefa hann. »Það er gagnslaust, gamli vinur«. »Hvað áttu við?« »Þú kemst ekki inn«. »Kemst jeg ekki inn?« Meðan Blake starði fondða á ræðumanninn, heyrði hann fótatak og sá Achille Marigny koma æðandi á vængjum vindanna. Það var hann, sem Norvin hafði áður sjeð koma nokkuð burtu. Rillean reis upp við olnboga og kallaði mæðulega: »Velkominn, Achille!« »Vertu rólegur, Marigny«, hrópaði Cline, »Við höfum frelsað hana«. 3*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.