Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 16

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 16
mikið og voru 41% hærri en tekjur verkamanna síðustu tvö árin, þ. e. 1961 og 1962. A þessu mun þó að nýju hafa orðið breyting til hlutfallslegrar lækkun- ar sjómannatekna á árinu 1963, (Miklar kau'phækkanir í landi) og gæti enn orðið breyting upp á við á árinu 1964, ef svo heldur áfram um aflabrögð og þegar er orðið, þótt kauptaxtar allir yrðu óbreyttir. Af niðurstöðum hagfræðingsins leið- ir, að allmikill hluti launaþegastéttanna hefur haft reynslu af mun óhagstæðari framvindu tekna sinna heldur en þjóðar- tekna á mann í heild, (landverkafólk) en annar hluti (fiskimenn) hefur haft því hagstæðari reynslu. Þróunin til jöfnunar tekna eftir lands- hlutum var óhjákvæmileg, en þróun tékna eftir atvinnustéttum er brýnt við- fangsefni dagsins í dag. Um það bera gleggst vitni hinar miklu kaupkröfur á s. I. ári, sem óhjákvæmi- lega hlutu að síðustu að koma niður á útflutningsframleiðslunni og þar með fiskverðinu skv. gildandi lögum. Ekki er mér kunnugt um viðræður, því síður samninga milli stéttarfélaga sjómanna og annarra launþega hópa um fast hlutfall milli tekna þeirra, enda erfitt um vik af mörgum ástæðum. Háar tekjur sjómanna skapast í flest- um tilfellum vegna aukins afla á af- mörkuðu tímabili, og því erfitt um sam- anburð, nema miðað væri við kauptrygg- ingu sjómanna. Allar viðræður um þessi mál yrðu erfið, sökíim klofnings og sund- urþykkju innan verkalýðshreyfingarinn- ar, auk úreltra vinnubragða, sem notuð eru, skorts á hagfræðilegum gögnum og pólitisku mati á hlutverki kjarabarátt- unnar. Einnig væri örðugt um vik af fleiri ástæðum, t. d. ef fiskimenn koma með meiri afla að landi eða verkamenn vinna lengri vinnutíma, eða auka tekjur sínar í ákvæðisvinnu, þá hækkar stór hluti alls vöruverðs í landinu, jafnt til þeirra, sem enga tekjuaukningu hafa hlotið sem hinna. Bara þetta, er ærin ástæða til þeirrar óvægnu samanburðarkröfugerðar, sem rekin hefur verið hér á landi síðustu ár. Vart finnast nokkur rök gegn því, að sjómönnum beri hlutfallslega hærri launatekjur en flestum öðrum launþega- hópum. Fyrst má benda á þá þjóðfélagslegu nauðsyn, að greiða þessa erfiðu vinnu svo vel, að menn fáist til starfans, en þrátt fyrir háa „toppa" og sæmilegar meðaltekjur í hlutfalli við verkamenn, sem ekki segir nema hálfa sögu, virðist skortur á mönnum á fiskiskipastólinn. Þá má benda á, að flest stéttarfélög land- verkafólks hafa samið um háar auka- greiðslur, ef unnið er utan samninga- svæðis félagsins. Opinberir starfsménn o. fl. fá yfir 30% launaálag vinni þeir vaktavinnu, en sjó- menn verða að vinna hvenær sem er á Pétur Sigurffsson. sólarhringnum, og flestir fiskimenn okk- ar hafa engan fastan vinnutíma, auk þess sem helgidagaliáld er mjög tak- markað. Þótt horft sé fram hjá ýmsum fjöl- skyldulegum vandamálum, sem skapast, atdi missis ýmissa menningarlegra verð- mæta, sem greitt er eða styrkt af al- mannafé, má benda á, að þeir verða að kaupa mestalla þá vinnu til heimila sinna, sem aðrir geta unnið að í frí- stundum sínum. Hár fæðis- og hlifðarfatakostnaður er stórt atriði, þótt nokkuð tillit sé tekið til þess við skattaálagningu. Með hinni nýju veiðitækni hefur út- haldstími og þar með vinnutími stór- aukizt. Sjómenn ókkar búa flestum öðr- um frekar við vosbúð og lífshættu í starfi. Síðast en ekki sízt ber að benda á þá staðreynd, að tiltölulega fá skip hafa náð gífurlegu aflamagni, svo ný heims- met á því sviði eru tíðir viðburðir. En þetta eykur auðvitað meðaltalstölur afla- magns og launatekna allvendega. Ekki ber að neita því, að sii skoðun á sér sterk rök, að mikil og skyndileg tekjuaukning hjá stórum hóp lands- manna sé verðbólguhvetjandi. Hefur t. d. verið bent á hinar miklu síldartekjur árin 61’ og ’62, sem urðu m. a. ein ástæða mikillar kauphækkunar opinberra starfs- manna, sem síðan varð viðmiðun ann- arra launþegahópa í síðari kröfum þeirra. Einnig hækkaði búvöruverð af þessum sökum. A þessu eru fleiri hliðar. Vegna þess verðbólguástands, sem hér ríkir nú, og hefur ríkt um 20 ára skeið, hefur stór- lega dregið úr undirstöðu allra fram- kvæmda þ. e. sparifjármynduninni. Hægt er að benda á með fullum rökum, að flestir þjóðfélagsborgararnir hafa nú aðstöðu til að láta peningatekjur sínar fylgja verðlagi. Grundvöllur sparifjár- myndunar ætti því að vera fyrir hendi ef verðbólgan orsakaði ekki þau viðbrögð, að krónunum bæri að eyða áður en þær minnkuðu í verðgildi. Nýjar, skyndileg- ar tekjur hafa kannski öðrum fremur farið í eyðslueyri og þess vegna aukið á ríkjandi spennu. Þeirri skoðun hefur nokkrum sinnum skotið upp, að skera ætti af hinum miklu „tekjutoppum" fiskimanna okkar af framangreindum orsökum. Um leið og sjálfsagt er að gæta þess að ofgera ekki atvinnuvegunum, svo þeir geti búið við eðlileg starfsskilyrði, verð- ur að vara við óraunsæi slíkra skoðana, bæði í Ijósi þess sem áður er sagt í þess- ari grein og þess að toppskipin draga að starfsgrein þessari, þann harðsækna kjarna sjómanna, sem henni er nauðsyn- legur. Þessu væri einnig mjög erfitt að koma heim, vegna hins mikla fjölda fiskimanna allt í kringum land, sem búa við lágar tekjur. Enda ber ekld á öðru, þegar skattheimta hins opinbera er búin að fara nærfærnum höndum stn- um um þessar „topptekjur", (sem allar eru taldar fram), en að nauðsynlegri tekjujöfnun sé náð, og þessir aflasælu fiskimetin hafi greitt sinn rtflega skerf til sameiginlegra þarfa sveitarfélags og rtkissjóðs. En eru þá engin ráð til að fyrirbyggja þær ómótmælanlegu afleiðingar, hárra launatekna nokkurs hóps fiskimanna á 2 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.