Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 61

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 61
iVíe 110 vél Schlossteins flugforingja P. Q. 17 skipalestinni fpann 4. júní rétt fyrir árásina. fenjamýrum 50 km. innan við rússn- esku víglínuna og láta vita með radíóskeyti hvar hann væri. Nokkr- um tímum síðar tókst Handrich flugforingja norðurdeildarinnar (sigurvegari frá Olympíuleikjunum í Berlín 1936), að lenda rétt hjá þeim og taka þá upp í vél sína. Þegar þeir voru komnir aftur til Höybuktmoen, sagði Handrich: Það er útlit fyrir að þér verðið að fara strax af stað aftur og veita vernd tundurskeytaflugvélunum í Skva- dron 26. Þeir eiga að gera árás á skipalest við Bjamareyjar. En það var Kústenfliegelstaffel 1/406 með aðsetur í Solbergfjorden, sem gerði fyrstu árásina. Þennan sama morgunn hafði Hauptmann Vater fengið fyrirskipun um árás á skipalestina. Meðan flugvélar sveit- arinnar voru hlaðnar benzíni, gerðu vélfræðingar tundurskeytin klár til árása. Rannsaka þurfti hvert tund- urskeyti og síðan fylla þau með þrýstilofti, vatni og spritti. Hvert tundurskeyti var 7,5 m á lengd og 775 kg. að þyngd. Þar af voru 200 kg. sprengiefni. Þegar var sleppt í árás mátti hraði vélarinnar ekki vera meiri en 180 km. og hæð yfir sjávarflöt ekki yfir 40 m en þá gátu þau farið 2.000 metra með 33 mílna ferð. „Hagkvæmasta“ fjarlægð frá skotmarki var 800 m — raunveru- leg sjálfsmorðs fjarlægð. Eftir 5 klst. var allt tilbúið til ferðar. Heinkel-vélarnar stungu sér nið- ur úr þokunni, og allt í einu var P. Q. 17 beint framundan. Aðvör- unar- og fyrirskipunarmerki með morselömpum glömpuðu um alla skipalestina, en Hauptmann Vater gaf merki um fyrirvaralausa árás, og í miðunarsjónauka hverrar vélar var eitt skip. Frá flutningaskipum og varnarskipunum voru 126 fall- byssur og 141 loftvarnabyssa við- búnar árásinni. P. Q. 17 skal sökkva! Hauptmann Vater einbeindi árás sinni á fylgdarskipið „Zamalek", skothríðin dundi á brú þess og um allt dekkið. Tuttugu sekúndum síð- ar sprakk sprengja hjá öðru eftir- litsskipi „Zafaaran“ undir vél Hauptmanns. Honum var ekki ljóst hvort flugvélin var eyðilögð, en hann missti stjórn á henni, en tókst þó að renna henni niður á milli skip- anna, sem skutu stöðugt á eftir hon- um, og lenda henni á sjóinn um 2 til 3 km. utan við skipalestina. Tveir tundurspillar keyrðu frá lest- inni í átt að óvinaflugvélinni, sem var að byrja að sökkva, Hauptmann og félagar hans tveir komust í gúm- mífleka og sáu fyrir sér fangavist það sem eftir var styrjaldar. En allt í einu kom Heinkel vél svífandi til þeirra og settist rétt hjá þeim. Þeir klifruðu um borð af flekanum, og vélin tók sig upp í skyndingu og hvarf í þokumóðuna. A tundurspill- inum „Pozarica“ tautuðu bretamir sem misstu af bráðinni. „Þeir eru ískaldir þessir Þjóðverjar, en ekk- ert af tundurskeytum þeirra hefir hitt, við erum enn með 1-0.“ Þann 4. júní kom enn árásarskip- un til vélanna á Bardufoss flugstöð- inni, það voru flugsveitirnar „Löwe“ og „Adler“ sem skömmu áður höfðu komið frá Frakklandsvígstöðvunum. Nú áttu þær að reyna sig við P. Q. 17, samtals 50 Ju 88 vélar. Frá Billefjord lögðu á sama tíma upp Heinkelvélar til verndar tund- urskeytavélunum og Schlosstein frá Höybuktmoen með sínar ME 110 árásarvélar. Nú var allt fljúgandi og fljótandi árásarlið Þjóðverjanna á leið út í Ishafið. Herskipin voru farin af stað frá Trondheim, en þeg- ar „Tirpitz“ lagði af stað frá Alta- fjord þann 5. júní var öllu lokið. Rúmlega 20 skip höfðu farist í íshafið. Flugvéladeildirnar „Löwe“ og „Adler“, ásamt ME 110 deildinni í samstarfi við kafbátadeildina „Eisteufel“ höfðu lokið hlutverki sínu. P. Q. 17 hafði verið splundrað, rúmlega 20 skip höfðu verið sprengd í loft upp eða sökkt og mörgum skipum sem reyndu að komast undan af eigin rammleik var einnig sökkt. Aðeins um einn þriðji hlut- inn af 200.000 tonna flutningi varð komið til Arkangelsk. I fjórtán daga héldu ýmis leitarskip bandamanna áfram að leita að eftirlifandi sjó- mönnum á flekum víðsvegar um ís- hafið. Það tók nokkurn tíma áður en herstjórn bandamanna var búin að ná sér eftir þetta hroðalega tjón, til þess að senda nýja skipalest af stað, P. Q. 18, en þann 2. september lagði hún af stað út frá Loch Ewe, 37 flutningaskip. SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.