Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 38

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 38
Kerling. Drangey er söguríkasta óbyggð eyja við strendur Islands. Hún er líka sú tignríkasta þeirra og arð- bærasta. Það telja sumir að hún hafi haldið lífinu í fjölda manns þegar þrengingar urðu hvað mestar af völdum hallæris í landinu. Vissulega hefur Drangey einnig krafist fórna. Mörg mannslíf hafa farizt í Drangeyjarbjargi, eða undir því þegar menn hafa verið að leita fanga, fugls og eggja í eynni. Hvarvetna þar, sem mikið skeður válegra atburða myndast sagnir og Bergtröllið Þorsteinn ]ósepsson blaöamaönr þjóðsögur og fyrir bragðið er Drangey ríkari af þeim en nokkur önnur óbyggð eyja. Þar úir og grúir af örnefnum, ekki aðeins uppi á eyjunni sjálfri heldur í björgum hennar og í flæðarmálinu undir henni. Drangey hefur orðið stórskáldum þjóðarinnar að yrkisefni. Stephan G. segir: Drangey er risin úr rokinu og grímunni rétti upp Heiðnaberg hvassbrýnt að skímunni. Drangana hillti úr hafsjónum flæðandi, hríðin er slotuð og stormurinn æðandi. Árgeislinn fyrsti um Tindastól tindraði, tindurinn efsti á himinn sindraði. Hvítnaði rökkrið í rof fyrir löndunum, Reykjaströnd grilltist með sæbröttu ströndunum. Náttskuggafyllurnar fjarlægðust dvínandi, fjörðurinn opnaðist, breiður og skínandi. Suður til heiða frá sæbotni skáhöllum, sólheimur ljómandi, varðaður bláfjöllum. í þessu kvæðisbroti kemur greini- lega fram andstæðan mikla milli ljómandi sólheims og flæðandi haf- sjós, en hvort heldur sem er leikur það sér að bergtröllinu mikla á miðjum Skagafirði. „Dunar undir Drangey um dimm- viðris haust; ymur þar enn í dag með annarlegri raust. Dunar undir Drangey,“ segir annað stórskáld, Matthías Joch- á Skagafirði ferÖast meÖ okknr til Drangeyjar. umsson, en þar kennir sama and- blæs að vissu marki og hjá Stepháni G. þannig að það er undiralda veðra- brigða sem kveður sinni raust við hamraveggina svo að undir dunar. Á öðrum stað kveður Matthías: „Heill þér, Drangey, djúpt und fótum dunar þér frá hjartarótum harður gnýr af heiftarspjótum, hér er það sem Grettir bjó.“ Drangey dregur nafn af háum klettadrang sem stendur einn sér upp úr djúpinu skammt sunnan við eyna og ber nafnið Kerling. Áður voru þessir drangar tveir, og hét hinn Karl, en hann er nú að mestu horfinn í sjó, hrundi fyrir mörgum áratugum. Um þessa tvo dranga og Drangey er til sú þjóðsaga að tvö nátttröll hafi dagað uppi í miðjum firðinum er þau voru að leiða trölls- kú úr Regnhelgi undir tröllsnaut handan fjarðar. Karl gekk á undan og teymdi kúna, en kerling rak á eftir. Óðu þau þvert yfir fjörðinn, en áður en minnst mun varði ljóm- aði dagur í austri og urðu öll að steini. Kýrin er Drangey sjálf. Þykir hún vera Skagfirðingum arðbær vorbæra þótt úr steini sé og að ekki hafi þar um slóðir gefið arðbetri kýr. 24 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.