Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 20
Ródrarsveit kvenna Fiskiðjuvers Bæjarútgerðar Reykjavíkur með hinn nýja ísbjarnarbikar.
Stefán Stefánsson.
dagsráðs verðlaun og heiðursmerki
Sjómannadagsins. Afreksbjörgunar-
verðlaun Sjómannadagsins hlaut að
þessu sinni Stefán Stefánsson, skip-
stjóri á m.s. Halkion Vestmannaeyj-
um og skipshöfn hans fyrir giftusam-
legar bjarganir á skipshöfninni á
m.s. Bergi frá Vestmannaeyjum, 6.
des. 1962 og skipshöfninni á m.s.
Erlingi 4. frá Vestmannaeyjum, 22.
marz 1963. Stefán Stefánsson skip-
stjóri gat ekki vegna sjúkleika komið
til Reykjavíkur til að veita verð-
laununum viðtöku, en þau vom fag-
ur áletraður silfurbikar, gefinn af
Félagi ísl. botnvörpuskipaeigenda.
Afhending verðlaunanna fór því
fram í Vestmannaeyjum. Fjalarbik-
arinn hlaut Örn Aanes, Vestmanna-
eyjum, nemandi í Vélskólanum í
Reykjavík, fyrir hæsta einkunn við
lokapróf í vélfræði frá skólanum.
Hann hlaut ágætiseinkunina 7,2, sem
er 90% af hámarkseinkunn. Starfs
síns vegna var hann ekki viðstaddur
afhendinguna.
Heiðursmerki Sjómannadagsins
hlutu: Eiríkur Kristófersson, skip-
herra, Sigurður Benediktsson háseti
Róðrarsveit ms. Guðm. Þórðarsonar með lárviðarsveiginn og Fiskimann Morgunblaðsins.
K1 10.30 hófst hátíðamessa í Laug-
arásbíói. Prestur var séra Óskar J.
Þorláksson en söngstjóri Gunnar
Sigurgeirsson. Fjolmennt var við
nicssuna og var henni útvarpað.
Kl. 14.00 hófust hin venjulegu há-
tíðahöld við Austurvöll. Sjómanna-
félögin mynduðu fánaborg með fé-
lagafánum og ísl. fánum á Austur-
velli. Lúðrasveit Reykjavíkur lék
sjómanna- og ættjarðarlög og Guð-
mundur Guðjónsson óperusöngvari
söng einsöng. Lagður var blómsveig-
6 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
ur á leiði óþekkta sjómannsins í
Fcssvogskirkjugarði.
Ræðuhöld fóru fram af svölum
Alþingishússins. Biskup íslands, hr.
Sigurbjörn Einarsson, minntist
drukknaðra sjómanna. Sjávarút-
vegsmálaráðherra Emil Jónsson
flutti ávarp af hálfu ríkisstjórnar-
innar, Baldur Guðmundsson útgerð-
armaður af hálfu útgerðarmanna og
Garðar Pálsson skipherra af hálfu
sjómanna. Þá afhenti Pétur Sigurðs-
son alþingism., formaður Sjómanna-