Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Blaðsíða 34
----------------------------------------\
Lyra liggur í Bergen,
Laxfoss viS Sprengisand,
Sindri ó Siglufirði,
Súðin austan við land,
Sœbjörg hjó Suðurnesjum,
Selfoss í Liverpool,
Katla er komin af hafi,
Kóri selur í Hull.
SKIPAFRÉTTIR
Á hverjum degi eru til jafnaSar
um 16.500 skip á siglingu víðsvegar
um heimshöfin á leið í höfn eða úr
höfn á ótal siglingaleiðum. Um 9.300
skip eru á sama tíma í höfn víðsveg-
ar um heim að losa vörur eða lesta
vörur af ýmsum tegundum, og far-
þegar að ganga frá borði eða um
borð. Um það bil 1.800 skip eru í
skipakvíum til viðgerðar eða hreins-
unar. Um 1.000 skip liggja fyrir akk-
erum á skipalegum, annaðhvort að
bíða eftir fragt, eða orðin úr sér
gengin í samkeppninni.
Flutningar á farmi og farþegum er
einn af elztu atvinnuvegum jarðar-
innar og einn sá mikilvægasti. Skipa-
byggingar er einn mikilvægasti iðn-
aður Bretlands. Tekjur af siglingum
verzlunarskipa víðsvegar um heims-
höfin er einn meginþáttur í gjald-
eyrisöflun Norðmanna. Siglingar eru
Um allt eru fley vor í förum
með farþrá vora um borð.
Þau leggja á votar leiðir
í leit að ókunnri storð.
Þau beygja í suður, þau beygja
í norður,
þau bruna frá pól að pól,
plœgja erlend höf til erlendra hafna
undir erlendum himni og sól.
Því eyru vor cetíð heilla
hin erlendu borga nöfn:
Singapore, Bombay, Boston,
Berlín, Kaupmannahöfn,
París, Lissabon, London,
Leningrad, Monte Carlo,
Messina, Versalir, Verdun,
Wiesbaden, Milano.
Karl ísfeld.
V--------------------------------------
einn meginþáttur í lífsbaráttu fjölda
þjóða, ýmist af stjórnmálalegum- eða
fjárhagslegum ástæðum. Hin mikla
skipaeigendasamsteypa í Bretlandi,
Peninsular & Oriental group, starf-
rækir einn mesta skipaflota heims
eða um 370 skip samtals um 2.342.000
brt. tonn að stærð, er sigla um öll
heimshöfin. Á hinu leitinu er svo
hinn einstaki útgerðarmaður sem ef
til vill á eitt gamalt og úr sér gengið
skip, er stundar siglingar um Ermar-
sund eingöngu. Milli þessara út-
varða koma svo siglingaflotar
Grikkja, Norðmanna, Svía, Dana,
Breta og Japana, sem eins og Skand-
inavisku löndin sigla undir þjóðar-
flaggi að fáeinum undanteknum frá-
töldum. En auk þessara eru svo
hundruð einstaklingsfélaga sem sigla
undir ýmsum fánum og eiga skipa-
flota breytilega að stærð, frá fimm-
tíu eða fleiri niður í tylft skipa eða
færri.
Oll þessi skip, sem mynda hinn
eiginlega verzlunarskipaflota heims
eru af öllum stærðum, aldri, gerð-
um og mætti einnig bæta við afbrigð-
um. Samkvæmt síðustu skýrslum er
heildartala þeirra 28.600 skip yfir
1000 DW tonn að stærð.
Þau sigla undir rúmlega hundrað
þjóðfánum og á þeim starfa rúmlega
ein milljón manna. Tæp milljón far-
þega ferðast árlega fram og aftur
Rotterdam.
20 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ