Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 31

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 31
miklum hraða, þangað til það allt í einu skauzt upp úr sjónum og nam staðar. Skildist okkur að nú hefði hákarlinn slitið sig úr lóðinni, enda reyndist það svo. Báturinn var nú þurausinn, og við hugsuðum okkar ráð. Það kom í ljós, að Stjáni bróðir hafði fengið stór sár á báðum höndum. Blæddu þau nokkuð og sviðinn var illþol- andi. Umbúðir voru ekki aðrar fyrir hendi en vasaklútar sem við rifum í strimla og vöfðum um fingurna þéttings fast til að hindra blóðrásina. Var líðan hans slæm fyrst í stað, bæði vegna sviðans í sárunum, og sumpart vegna mikillar geðshrær- ingar, því hann hamaðist við aust- urinn fyrst meðan mest var í bátn- um. En hættan var nú liðin hjá og tími til umhugsunar. Hann afréð nú að við skyldum reyna að ná því sem eftir væri af lóðinni. Rerum við að bólinu, og gekk sæmilega að ná strengnum og því sem honum fylgdi. Sannaðist hér um mig, þó lítils væri megnugur, að „betra er að veifa röngu tré en öngu“. En það sem máli skipti var það, að ég hafði alist upp við þessi störf, og kunni til verkanna, eða það fannst mér að minnsta kosti sjálfum, enda var ég snemma það sem mætti ef til vill kalla „mér vit- ur‘, en nóg um það. Og nú kom haf- rænan sér vel fyrir okkur eins og á stóð, hún var sönn guðs blessun. Við drógum upp segl og skilaði bátn- um vel austur yfir. Hugsuðum við þá vissulega gott til heimkomunnar. Hallgr. J. ★ Lárus bindindispostuli var á gangi á götu og sá þá kunningja sinn augafullan í göturæsinu og við hlið hans lá grís. Lárus hrissti höfuðið og sagði: „Rauna- legt er að sjá þig í slíkum félagsskap. Grísinn stóð upp og rölti leiðar sinnar. ★ Hjá rakaranum. „Hvers vegna segið þér viðskiptavin- unum alltaf mergjaðar draugasögur meðan þér eruð að klippa þá?“ „Jú, sjáið þér til, það er miklu betra að klippa þá, þegar hárið rís á höfði þeim.“ Hljóðmerkja- og talmagnari Neyða rmerkj a ra ketta Eitt hundrað ár eru nú liðin síðan James Pain stofnandi fyrirtæhisins James Pain & Sons Ltd. hyrjuðu að framleiða ýmiskonar neyðar- og varnarmerki fyrir sjófarendur. Og 10 árum síðar fengu J>eir sérleyfi til fram- leiðslu á rakettu sem skotið var á loft og gaf frá sér rauðan hlossa hátt í loft uppi, henni var skotið af smáspýtuhala, sem stungið var í hulstur. Á þessu hefir fyrirtækið — í nokkurskon- ar 100 ára minningu frá stofnun þess hafið framleiðslu á nýrri tegund neyðarmerkja af fidlkomnari gerð en áður hefir þekkzt. Þessi nýja neyðarraketta er nefnd Proteus fallhltfar neyðarmerkið — og er talið sam- eina alla heztu kosti eldri gerða slíkra tækja, en auk þess vera margfalt fyrirferðarminna svo auðvelt sé að nota það jafnt frá stærri skipum, sem hjörgunarhátum og björgunar- flekum án nokkurra vandkvæða. Kveikjuút- btinaði er þannig fyrirkomið, að rakettan hleypur ekki af fyrr en hún er í nákvæmri stillingu til þess að skotið geig iekki frá stefnu lóðrétt upp. Auðvelt er að skjóta rak- í Bretlandi er nýlega hafin framleiðsla á kallaratæki, sem væntanlega kemur til með að verða mikilsvert og hagnýtt fyrir stór og smá fiskiskip af öllum gerðum. Þetta er hljóðmögnunarkállari, sem hægt er að nota hvort sem er til að magna upp eigin rödd þegar talað er, og til þess að magna upp rödd annara sem kalla til manns itr fjarlægð (og sennilega þokumerki frá öðrum skipum eða frá landi). Þetta er mjög fyrirferðarlítið tæki og miðað við að halda því auðveldlega í hendi, og þyngd þess aðeins þrjú pund. Það er lúðurlaga, en í handfangi þess er komið fyrir rafhlöðu- magnara og í þumalfingurhæð frá honum er þrefaldur rofi, sem stillir á tal, merkjasend- ingu eða hlustun og alveg við hann er hljóð- mögnunarstillir. 1 einni stillingunni kemur samfelldur hljómur.svo lengi sem stutt er á rofann, sem þýðir að hægt er að senda með honum hvers- konar alþjóðleg merki í hjörtu sem dimmu veðri. Ef stillingunni er breytt og tálað i mikrófóninn er hægt að magna eigin rödd hundraðfalt og í þriðju stillingu er hægt að leggja eyrað við mikrófóninn til þess að heyra raddir annarra eða þokumerki frá öðrum skip- um eða landi, í talsvert lengri fjarlægð held- ur en hægt er undir venjulegum kringum- stæðum. ettunni hvort sem er með háðum höndum eða annarri ef þannig stendur á. Rakettunni er komið fyrir í stálhylki sér- staklega ryðvörðu og málað með efnablöndu sem hlífir því hverskonar veðráttufari. Skot- hæðin nær 1.200 fetum, blossmagnið er 40.000 kertafla og fullur logtími um 40 sek- útndur. SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 1 7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.