Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 49

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Síða 49
Birgir stýrði, en ég var við dæl- una, sem var handdæla, og leit eftir vélinni. Báturinn var nú farinn að verja sig illa. I ólögunum gekk mik- ill sjór í hann. Ég óttaðist að vélin mundi stöðvast, því hún var farin að ausa upp á sig sjó. Sleppti ég þá dælunni og greip vatnsfötu og jós með henni eins og ég gat, en Birgir tók við dælunni og dældi með henni Jafnframt varð hann að hafa stjórn á bátnum, og passa upp á þegar ólög kæmu, því þá varð að „slá undan“, báturinn þoldi ekki að beitt væri upp í. Eftir eitt ólagið náði austurinn langt upp á svinghjólið á vélinni. Ég herti mig sem ég gat við að ausa, en samt leið, að mér fannst, langur tími þangað til ég náði austrinum niður fyrir hjólið aftur. Þetta var líka langversta ólagið, sem kom á bátinn. Ég hef oft hugsað um það síðan, hvílíkt lán var yfir okkur, að vélin skyldi ekki stöðvast, því þá hefði verið óvfst um endalokin á ferð okkar. Smátt og smátt þokaðist þó í áttina hjá okkur, og þegar við nálg- uðumst höfnina á Patreksfirði fór heldur að draga úr bárunni, en rokið var svo mikið, að sjórinn skóf inn í bátinn. Það mátti því aldrei lina á við að ausa. Þegar við vorum skammt inn af bryggjunni á Vatn- eyri, sá Páll Eiríksson, sem þá var yfirverkstjóri á Vatneyri, til ferða, okkar. Við lentum litlu seinna rétt innan við bryggjuna, en þar var Páll fyrir með marga menn með sér. Hraustlega var tekið á móti okkur, og bátnum kippt að mestu á þurrt. Það kom sér vel að fá svona mót- tökur, því ef við hefðum ekki fengið svona góða hjálp, hefði bátinn fyllt um leið og hann stóð. Greiðlega gekk að ná kindunum í land og setja bátinn, því margar hraustar hendur voru þar að verki. Við höfðum ekki gert okkur grein fyrir veðurofsanum, og ég vil segja þeirri hættu, sem við höfðum verið í á meðan við vorum á sjónum, því það er tvímælalaust langversta veð- ur, sem ég hef verið á sjó á opnum báti. Eftir að við höfðum gengið frá bátnum, fór ég upp á símstöð og hringdi yfir að Kvígindisdal, sem er næsti bær fyrir innan Vatnsdal, og talaði við Snæbjörn Thoroddsen frænda minn. Ég bað hann að hjálpa mér að koma boðum heim um að við hefðum komist heilu og höldnu til Patreksfjarðar. Það var fúslega gert frá hans hendi, þó varla væri hægt að segja að fært væri milli bæja. Þá var sími ekki kominn nema á þrjá bæi í Rauðasandshreppi, og yzti bærinn með síma Kvígindis- dalur. Við Birgir fengum gistingu hjá sæmdarhjónunum Ólafi Ólafssyni og Halldóru konu hans, en þau starf- ræktu lengi gistihús á Patreksfirði. Til þeirra var alltaf gott að koma. Morguninn eftir, eða á Þorláks- messu, var vindur genginn út í vest- ur. Hvassviðri í éljunum. Ekki leizt okkur á að leggja á fjörðinn. Akváð- um við að bíða fram á hádegið. og sjá til hvort ekki drægi eitthvað úr éljunum. A Patreksfirði voru stadd- ir nokkrir sveitungar okkar, sem voru í kaupstaðarferð fyrir jólin, en höfðu orðið veðurtepptir, og því orðnir seinir fyrir, til að ná heim til sín fyrir jól. Ætluðu þeir að fá far með okkur, því um aðra bátsferð var ekki að ræða. Ef okkur gæfi ekki upp úr hádeginu, ráðgerðu þeir að leggja af stað fótgangandi í kring- um fjörðinn. Allir báru þeir þungar byrðar, svo það var ekki tilhlökkun- arefni hjá þeim. Um hádegið fór að verða lengra á milli élja. Settum við þá bátinn á flot, og biðum í vari af bryggjunni á Vatneyri, tilbúnir til að fara þegar él væri gengið yfir. Á firðinum lágu margir erlendir tog- arar, sem leitað höfðu vars í storm- inum. Það var ætlun okkar að binda bátinn aftan í einhvern þeirra, ef við sæjum fram á að við næðum ekki yfir fjörðinn á milli élja, og bíða þar af okkur él, ef við sæjum ástæðu til þess. Eftir slæmt él lögð- um við af stað. Ferðin gekk vel. Þegar næsta él kom, vorum við komnir yfir undir vesturlandið á smásævi, og lentum heima eftir stutta stund. Sumir sveitunga okkar áttu þó langa leið fyrir höndum, og komu ekki heim til sín fyrr en seint næsta dag, aðfangadag. Síðan þetta gerðist eru aðeins rúm 30 ár. Þá var eins og fyrr segir sími á aðeins þremur bæjum f Rauða- sandshreppi, engir vegir, nema sem í dag væru kallaðir troðningar. Hvergi akfær spotti. Ef ekki var hægt að komast á sjó, þá varð að fara fótgangandi. Oft urðu menn að bera þungar byrðar, hálfar og heilar dagleiðir. Mikil breyting hefur orðið á þessu tímabili. Stórstígar framfarir hafa orðið á flestum sviðum. Búskapar- hættir gjörbreytzt, og aðstaða fólks- ins til bættra lífskjara batnað að miklum mun. Nú er sími á hverjum bæ, og ak- fært heim að hverju byggðu býli. En trillubátarnir standa óhreyfðir í naustum. Samgöngutækið sem mest var notað fyrir 30 árum. Útgerðarsamvinna milli ísraels og Noregs. The AÚantic Fishing Company og Haifa og tvö norsk útgerSarfélög sem eru í samstarfi við l>að eru nú að hefja undirbúning að samstarfi við fyrirtæki í Kongó (Brazzaville), Dáhomey og Nígeríu um sölu á fiskafurðum. Þegar samkomulag hefir náðst, munu fyrirtækin gera út 3 togara til Atlantshafsfiskveiða og er ætlunin að selja aflann í þessum þrem Afríkuríkjum. SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.