Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Qupperneq 58

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1964, Qupperneq 58
uðu nærri botni á 100—110 föðm- um. Reynslan hefur sýnt, að afli í þær flotvörpur, sem dregnar eru á einu skipi, er mjög háður torfustærð og þéttleika torfanna. Þrátt fyrir þennan jákvæða ár- angur, sem öðru hvoru næst í slík- um flotvörputilraunum, hefur þessi veiðiaðferð hvergi náð almennri út- breiðslu, nema á íslenzkum togur- um, þegar þeir stunduðu þorskveið- ar í flotvörpu á vetrarvertíð við Suðurland. Mikil vitneskja hefui' þó fengizt hin síðari ár um hegðun slíkra varpa í sjónum og viðbrögð- um fiska við þeim. Mælingar Þjóð- verja hafa t. d. sýnt, að hrygnandi síld fælist vörpur ekki að neinu ráði, Norðursjávarsíld, sem ekki er hrygnandi, virðist hins vegar miklu varari um sig, og sézt greinilega á endurvörpum dýptarmælisins, sem hafður er á höfuðlínunni, að síldin kemur hvergi nærri neti vörpunnar — er oft 2—4 metra frá netinu — þannig, að einungis sá (litli) hluti torfunnar, sem lendir fyrir miðju vörpuopinu, veiðist. Þessar athug- anir hafa leitt til þess, að nú er yfir- leitt stefnt að mjög stórum flotvörp- um með víðu opi í stað minni varpa, sem dregnar voru hratt. Islendingar voru frumherjar á sviði flotvörpuveiða. Enda þótt þær hafi að mestu lagzt niður um sinn, er það sannfæring mín, að þessi veiðiaðferð eigi eftir að færa okkur mikla björg í bú, áður en langt um líður. 4. Reknet. Þrjár aðalritgerðir voru lagðar fram á þinginu um reknetaveiðar. Tvær þeirra voru um laxveiðar Japana á Norður-Kyrrahafi með stórum móðurskipum. Netin eru dregin inn á fljótvirkum vindum. Veiðarnar eru skipulagðar með reglugerðarákvæðum bæði með til- liti til skipa- og netafjölda, stærð neta og veiðisvæða. Hvert veiðiskip má t. d. ekki hafa meira en 15 km langa netalögn (trossu) sem í eru 330 net. Það eru hinar hraðvirku vindur, sem gera kleift að draga svo mikil net daglega. Aflanum er svo skipað á degi hverjum yfir í móðurskip. 30—36 veiðiskip fylgja hverju móðurskipi. 44 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Hin þriðja ritgerð, sem fram kom á þinginu um reknet, fjallaði um tækninýjungar, sem orðið hafa hin síðari ár á rússneska reknetaflotan- um. Floti þessi er mjög stór sem kunnugt er og stundar síldveiðar mikinn hluta ársins á hafinu milli Islands og Noregs allt sunnan frá Hjaltlandi og Færeyjum norður að Jan Mayen og Svalbarða. Rússnesku síldveiðiskipin eru t. d. 50—100 sjóm. úti af Austfjörðum frá því í september til ársloka. Utbúnaður þeirra og stærð virðast nokkuð mis- munandi eins og íslenzkir sjómenn hafa sjálfir séð, þegar þeir eru á veiðum á sömu miðum, en hundrað þeirra eru útbúin eftirfarandi tækj- um skv. ritgerð þeirri sem að fram- an var nefnd, og er eftir P. A. Kuraptsev frá Haf- og fiskirann- sóknastöð ríkisins í Moskva: a) Þar sem skutur rússnesku rek- netaskipanna er lokaður, var útbúin sérstök járnslá og rúlla á síðu skips- ins. Utbúnaður þessi bægir netun- um frá skrúfunni þegar þau eru lögð og hefur gefizt mjög vel, því að áður var miklum annmörkum bundið að nota skrúfu skipsins, þeg- ar netin voru lögð. b) Skipin verða oft að liggja af sér vond veður að vetrarlagi með netin úti. Til að varna því að ,,kap- allinn“ slitni eru skipin nú útbúin með einskonar vindu sem gefur eft- ir á „kaplinum“ við visst átak, en dregur hann svo inn aftur strax og því linnir. c) Netin eru dregin á þann hátt, að tvö griphjól draga teinana. Grip- hjól þessi eru sérstaklega útbúin til að draga blýjaðan neðri teininn. d) Eitt leiðigjarnasta ef ekki erf- iðasta verk á reknetaskipum er að hrista síldina úr netunum. — Þetta vandamál leysa Rússar með sérstakri úrhristivél, sem staðsett er mið- skips á aðalþilfari. e) Færibönd flytja síldina af þil- fari að sérstakri söltunarvél. I henni er sjálfvirkur vöðlari, þar sem síld- inni er velt upp úr hæfilega miklu salti, eða kryddi, sem berst með færibandi eða „snigli“ að vöðlaran- um. Við enda vöðlarans er staðsett tunna á titrings- eða hristibretti og rennur síldin úr blandaranum beint í tunnuna, þar sem síldin raðast án þess að mannshöndin komi þar nærri. Söltunarvélin afkastar 30— 40 tunnum á klst. Hún fær afl sitt frá 3,8 kw rafal. Það sem hér hefur verið sagt um tækniútbúnað rússneskra rekneta- skipa sýnir, hve mikla áherzlu Rússar leggja á þessa gömlu veiði- aðferð og vaknar þá sú spurning, hvort Islendingar gætu ekki notið góðs af þessari vélvæðingu t. d. með notkun söltunarvélar bæði til sjós og lands. Þess skal að lokum getið, að íslenzkir aðilar hafa fylgzt með þróun söltunarvélarinnar s.l. 4 ár eða frá því að greinar birtust fyrst um hana í rússneskum tímaritum. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að fá slíka söltunarvél keypta til landsins ,en þær hafa ekki enn borið jákvæðan árangur. 5. Herpinótaveiðar. Um herpinótaveiðar var lögð fram aðeins ein aðalritgerð þótt ýms- um þáttum þessara veiða svo sem fiskileitartækjum, kraftblökkum o. fl. væru einnig gerð skil í öðrum ritgerðum t. d. í sambandi við fiski- leit og tækniútbúnað. Framan- greind ritgerð var eina ritaða fram- lag Islendinga til veiðarfæraþings- ins og fjallaði hún um þróun síld- veiðitækni Islendinga síðastliðinn áratug. Rakin var þróunarsaga síldarleitarinnar á sjó og úr lofti. Þá var einnig gerð grein fyrir notkun kraftblakkar og nótagerð. Ritgerð þessi var skrifuð eftir sér- stakri beiðni frá FAO og fékk höf- undur (Jakob Jakobsson) leyfi ís- lenzkra yfirvalda til að semja hana. Þá hafði hann einnig samráð við nokkra skipstjóra, netagerðarmenn o. fl. aðila við samningu verksins. Ekki þykir ástæða til að fjölyrða frekar um efni þessarar ritgerðar hér, enda verða meginkaflar hennar væntanlega þýddir á íslenzku í ná- inni framtíð og birtir á vegum Fiski- félags Islands. Skylt og ljúft er að geta þess að á veiðarfæraþinginu var sýnd um 10 mínútna löng kvikmynd, sem Arni Stefánsson hafði tekið um síldveiðar við Island. Kvikmynd þessi, sem er mjög fögur og vel tekin, vakti ánægju og áhuga meðal hinna 400—500 fundarmanna frá öllum fiskveiðiþjóðum heims.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.