Sjómannadagsblaðið - 26.05.1968, Blaðsíða 28
Þessi glœsilega teikning er af 23,000 tonna skipinu HAMBURG, sem Deutsche Atlantik skipafélagiS
hefir samiS um smíSi á viS Deutsche Werft í Hamborg. AðalsiglingaleiS þess verður Hamborg-New
York, en einnig er því astlað að sigla sumarferðalög í Norður-Atlantshafi, og á því vœntanlega eftir
að heimsœkja ísland. — I fastaferðunum er því œtlað að hafa farþegárými fyrir 600 mánns, en í
sumarsiglingum fyrir 800 manns. Mun skipasmíðastöðin afhenda það til starfrœkslu vorið 1969. —
Heildarlengd skipsins er 628 fet, djúprista 27 fet, og ganghraði 23 sjómílur.
í viðtali við Morgunblaðið 28. desember sagði hann, að
„Einar skipherra hefði farið nokkuö óvarlega við töku togara
undanfarið og dómar hefðu gengið á móti honum.“
I viÖtali við AlþýÖublaðiÖ 27. desember sagði hann: „Einar
M. Einarsson hefur fengið frí um stundarsakir, en heldur
launum sínum, og Jóhann P. Jónsson hefur aðeins verið feng-
inn til að fara út með skipiÖ í þetta sinni."
1 hans eigin blaði, Nýja dagblaðinu, er mikil hólgrein 27.
desember, með stórri mynd af Einari, og þar hefur veikinda-
sagan fengiÖ á sig fasta mynd. Segir í blaðinu, að Einar hafi
ofboöið taugum sínum við björgun manna og skipa og hann
hafi staÖið á stjórnpalli lengur oft á tíðum en mannlegu þreki
sé bjóðandi, og yrði hann að fá hvíld.
Aldrei lánaðist Einari að ná tali af ráðherranum, sem rak
hann, né heldur fékk hann svar við bréfum sínum til ráðu-
neytisins. Sú ásökun ráðherrans, að Einar hafi farið „óvar-
lega við töku togara," og „dómar gengið gegn honum undan-
farið," virðist ekki eiga sér neina stoð fremur á þessum tíma
en endranær. Einar fékk á sig flesta sýknudóma á fyrra tíma-
bilinu, 1929—32, fjóra eða fimm, enda var þá leitaÖ ákafast
höggstaðar á honum. Miðað við það, að hann sótti alls 49 tog-
ara til saka, eru sýknudómamir furðulega fáir, og hlutfallið
ekki sýnu verra en hjá hinum varðskipunum, þrátt fyrir allt.
A árinu 1937 finn ég ekki neinn sýknudóm yfir togara, sem
hann hafði tekið, hins vegar náðaði þessi ráðherra togara,
sem búið var að dæma fyrir báðum réttum.
Þess má einnig geta, að flestir sýknudómar, sem Einar fékk
á sig í Hæstarétti voru andstæðir undirréttardómunum, sem
einmitt þessi ráðherra hafði kveðið upp, sem lögreglustjóri í
Reykjavík á þeim tima. Þessum manni fórst því sízt allra
manna að nefna viðskipti Einars við Hæstarétt. Ef skipherr-
ann hafði gert skyssu við töku togara, hafði þessi maður ekki
14 SJOMANNADAGSBLAÐIÐ
þá einnig gert skyssu, sem dómari við rannsóknarmál? En
sem sagt, á árinu 1937, var enginn fótur fyrir ofangreindri
ásökun.
Einar tók alls 49 togara, sem fyrr er sagt, 20 á fyrra tíma-
bilinu, 1930—32, en 29 á síðara tímabilinu, árunum 1934—
37. Næstu þrjú árin eftir að Einar var settur í land, tók Ægir
1 — einn togara. Enn sannaðist, að ráðherrann hafði staðið
við þau orð sín, að gæta hagsmuna Breta í landhelginni. Það
átti einnig eftir að sannast fyrir dómstólunum, að sakir voru
engar á Einar og brottrekstur hans var ekki réttlætanlegur
frá sjónarmiði laganna. Hann hélt fullum launum þau fimm
og hálft ár, sem hann átti eftir af skipunartímanum, en land-
helgisgæzlan ætlaði að þrjózkast við að greiða honum hluta
af björgunarlaunum Ægis á þessum tíma. Hann fór í mál
og vann það.
Einar M. Einarsson komst ekki á vonarvöl, þótt íslenzka
ríkið gæti ekki notað hann lengur. Það var hvort tveggja, að
hann hélt fullum launum, sem fyrr segir, og svo skeði það
hlálega, að Bretar sjálfir réðu hann í þjónustu sína. Þegar
brezkir vátryggjendur togaranna fréttu að búið væri að setja
Einar frá urðu þeir æfir, skrifuðu hingað upp og hörmuðu
brottvikningu hans og vildu fá hann til starfans aftur, hvað
sem liði öllum togaratökum. 1 bréfum þeirra, en þau urðu
mörg, segir, að hann sé færastur allra manna hérlendis við
björgun og sé búinn að bjarga stórkostlegum verðmætum. —
Einar náði á flot tuttugu togurum á árunum 1930—37 og var
þó tvö ár skiplaus og tæki ekki eins öflug og nú er orðið.
Árið 1947 fluttist Einar til útlanda og var þar búsettur um
tuttugu ára skeið og annaðist fyrir Skipaskoðun ríkisins eftir-
lit með smíði íslenzkra skipa í Danmörku, Þýzkalandi og Sví-
þjóð um fjórtán ára skeið. Hann er nýkominn heim og hefur
dregið nökkvann í naust á Hrafnistu.