Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Side 9
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
7
Ég fullyrði að mikið hefur unnist á
síðustu misserin, ekki síst af hendi
stjórnvalda og Alþingis. Má þar til
nefna að ný siglingalög hafa verið
samþykkt, svo og ný lög um Siglinga-
málastofnun ríkisins. Til stjórnar
hennar fellur margt af fyrri störfum
Rannsóknarnefndar sjóslysa, en
fastanefnd til rannsóknar sjóslysa
hliðstæð valdamikilli Flugslysanefnd
tekur brátt til starfa í samræmi við ný
siglingalög. Nýjar reglur hafa verið
settar á fjölmörgum sviðum af Sigl-
ingamálastofnun og fleiri opinberum
aðilum og á undanþáguvandamálinu
var skynsamlega tekið, af fullum
þunga, en þó með lipurð. Lögðu
hagsmunaaðilar þessu máli gott lið
og er þess að vænta að við vinnum
okkur út úr þessu vandamáli á næstu
árum.
*
Þegar ég lít til baka yfir þessa
stuttu en þýðingarmiklu vegferð, er
mín niðurstaða sú, að grundvallar-
skilyrði þess að aukins öryggis sæfara
verði náð sé fræðsla, þekking og
þjálfun.
Ráðherra menntamála, Sverrir
Hermannsson, mælti eftirfarandi orð
á Alþingi skömmu fyrir þingslok:
„Nám er hagkvæmasta íjár-
ráðstöfun sem hugsast getur“.
Þetta er hárrétt hjá ráðherra. Pers-
ónulega tel ég góða guðfræði að
kenna sjómönnum að gæta lífs og
Iima, og fara vel með og gæta þeirra
stórkostlegu efnislegu verðmæta, sem
þeir fara með.
Til viðbótar vil ég benda á að nám
má flokka eftir hagkvæmni. Hún
hlýtur að eiga sér sterka stoð, ef hægt
er að koma í veg fyrir óhugnanlega
slysatíðni til sjós — þar með talinn
ótrúlegan fjölda dauðaslysa.
Vík ég þá aftur að spurningunni í
upphafi þessarar greinar. Verður for-
varnarstarfið viðvarandi eða hjaðnar
það sem hver önnur bóla?
Þessi þörf var virt, að vísu lítils-
háttar, þegar Alþingi samþykkti
frumvarp sem ég flutti um Sjóvinnu-
skóla íslands (lög no: 23, 1975 frá 23.
maí). Þetta voru því miður aðeins
heimildarlög og hafa aldrei verið
nýtt. En í þeim segir að skóli þessi
skuli vera farskóli, þ.e. að hann sé til
staðar á helstu útgerðarstöðum
landsins, þegar óskað er og mögu-
leikar eru fyrir hendi.
Samkvæmt 9. grein þessara laga á
menntamálaráðuneytið að fara með
yfirstjóm skólans og kostnaður á að
greiðast úr ríkissjóði. Hvort sem
þessu ráðuneyti eða öðru verður
treyst fyrir frekari framkvæmdum tel
ég nú, að heppilegast og fljótvirkast
sé að taka þessi lög til endurskoðunar
og breyta þeim á þann veg að þetta
verði starfandi farskóli og beri heitið
„SLYSAVARNA- OG SJÓVINNU-
SKÓLI ÍSLANDS“.
Áhugamenn binda miklar vonir
við fyrrum varðskipið Þór, sem nú
má með réttu kalla „skólaskipið
Þór“.
Vera má að einhverjum muni vaxa
Pétur Sigurðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs, og í baksýn
höfuðstöðvar Slysavarnafélags
íslands. Ljósm. Björn Pálsson.