Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 78

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 78
76 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ ÞAÐ FER VEL UM SKIP í ÞESSARIHÖFN Rætt við Sigurð Þorgrímsson skipaþjónustustjóra Reykjavíkurhafnar Jú, áður kallaðist þetta embætti yfirhafnsögumaður, en síðan var því breytt og það hét um hríð deildarstjóri skipaþjónustu og nú heitir það sein sagt skipaþjón- ustustjóri. — Það gengur svona til á tækniöld,“ segir Sigurður Þorgríms- son skipaþjónustustjóri í Reykjavík í stuttu spjalli um starf sitt. Sigurður er borinn og barnfæddur Reykvíkingur, sonur hjónanna Guð- rúnar Jónsdóttur og Þorgríms Sig- urðssonar, skipstjóra og útgerðar- manns á togaranum Baldri. Sigurður gekk í Verslunarskólann, útskrifaðist þaðan 1938 og starfaði sem verslun- armaður um skeið, en fór til sjós 1940, tók Stýrimannaskólann 1943 og var síðan stýrimaður á togurum til 1954 að hann fór í landi. í ársbyrjun 1956 gerðist hann hafnsögumaður í Reykjavík og á því þrjátíu ára starf að baki sem lóðs í Reykjavíkurhöfn. Hann var ráðinn deildarstjóri skipa- þjónustu þegar Jóhann Magnússon lét af störfum 1984. „Nei, hlutverk hafnsögumannsins hefur ekkert breyst á þessunr þrjátíu árum,“ segir Sigurður, og breytist aldrei. Það verður sem fyrr að taka á móti skipum og leiðbeina þeim til hafnar og síðan úr höfn. Aftur á móti hefur orðið miklu breyting á allri vinnuaðstöðu okkar á þessum tíma og er þá fyrst að nefna hin fullkomnu fjarskiptatæki sem nú eru komin í notkun bæði í skipum og hjá okkur í landi. Allir sem hér vinna eru með tal- stöð upp á vasann og geta haft sam- band við okkur í varðstöðinni upp á fimmtu hæð í Hafnarhúsinu og við getunr sömuleiðis náð til þeirra á svipstundu hvar sem þeir eru staddir á hafnarsvæðinu. Það er gjörbylting frá því sem var þegar ég byijaði hérna. Ennfremur er mikið hagræði að því að geta haft samband við skip- in á haf út: t.d. hafa skipstjórar í Evrópusiglingum gjarnan samband við okkur út af Grindavík, en á þeim stað er mjög gott talstöðvarsamband við Reykjavíkurhöfn, og staðfesta þann tíma sem þeir koma til hafnar. í gamla daga vissum við sjaldnast af skipunum fyrr en þau lögðust á ytri-höfnina. Þá hafa skipin stækkað gríðarlega; þegar ég byrjaði voru stærstu olíu- skip sem hingað komu 120—140 metrar að lengd en nú þekkjast þau varla undir 170—190 metrunr og skemmtiferðaskipin eru upp í 220 metrar sem við tökum í Sundahöfn. Hleðslan er líka önnur, skipin eru hlutfallslega ekki jafn djúprist og þau voru áður en hafa hins vegar meira háfermi og eru því í mörgum tilfell- um erfiðari viðfangs en gömlu skipin ef sterkur vindur er, en það er mjög vindasamt inni í Viðeyjarsundi. En skipin eru auðvitað að flestu leyti mun betur búin heldur en var og þurfa því ekki eins mikla dráttar- báta-aðstoð við góðar aðstæður; þau láta betur að stjórn, eru komin með betri stýri og hliðarskrúfur. Öll skip yfir 60 metra að lengd eru hafnsöguskyld, en í fyrra var hafnar- reglugerðinni breytt á þann veg að skipstjórar sem hafa siglt reglulega til hafnarinnar geta, ef þeir uppfylla viss skilyrði, fengið hafnsöguskírteini sem hafnarstjóri gefur út. Við gegn- um eftir sem áður hafnsögu fyrir þessi skip með fjarskipta sambandi við skipstjórana; tilkynnum þeim hvar skipin eiga að liggja og gefum þeim allar upplýsingar um ástandið í höfninni, hvernig veðrið sé o.s.frv. — en það er þessum skipstjórum í sjálfs- vald sett hvort þeir fá hafnsögumann um borð við að sigla inn og út. Reykjavíkurhöfn er að mínum dómi mjög örugg og góð höfn. Hafn- araðstaðan batnaði mikið þegar flutningaskipin voru að mestu flutt inn í Viðeyjarsund og búin aðstaða í Sundahöfn eða við Holtabakka. Ég held því að það fari vel um skip í þessari höfn; þau liggja hér mjög örugglega. Það eru náttúrlega til stað- ir hér í höfninni sem eru ekki fýsileg- ir í ákveðnum áttum, en við högum okkur í samræmi við það á þeim árs- tímum sem von er á illviðrum. Það er líka stundum erfitt að koma skip- um fyrir þegar mikill íjöldi þeirra er inni, svo sem á hátíðum eða ef verk- föll eru, en skipstjórar eru skilnings- ríkir þegar svo stendur á og vinna með okkur. Það er svo til ekkert orð- ið um það að skip verði fyrir skemmdum í höfn í viðlegum: hafn- arvirkin, bryggjumar, eru með betri hlífum en áður, þakin gúmmíi, og sömuleiðis eru skipin betur varin, svo sem með listum á hliðunum sem taka við höggum og ef þau gnuða saman þegar þau liggja hlið við hlið og hreyfing er. Jú, það hefur oft verið harðsótt að komast um borð í skipin, t.d. hefur það oft komið fyrir að það hafi ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.