Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 28

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 28
26 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Þessar teikningar er úr sýningarskrá hinnar miklu sjávar- útvegssýningu, Islcndingar og hafið, sem lialdin var í Laug- ardalshöll 1968 að frumkvæði stjórnar Fulltrúaráðs Sjó- mannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði. áhersluna á gufuskipin og sögu þeirra, þ.e. flutninga- og farþegaskip og togara allt fram í Nýsköpun. Ætlunin er að hver sýning segi ein- hverja sögu og næst mætti til dæmis taka fyrir áraskipin og allt sem þeim fylgir o.s.frv. Einnig sýnum við núna í byrjun fjölmarga áhugaverða muni sem Landhelgisgæslan hefur látið okkur í té. Þegar þessi orð eru töluð er verið að leggja síðustu hönd á upp- setningu hinnar fyrstu sýningar, en að undirbúningi hennar hefur verið unnið undir forustu þjóðminjavarðar og Gyðu Gunnarsdóttur, þjóðhátta- fræðings.“ Bryde-pakkhúsið stendur við Vest- urgötu í hjarta Hafnarfjarðar, en þar hefur verið endurbyggður skemmti- legur kjarni gamalla húsa. Við hlið Bryde-hússins er hús Bjarna Sívert- sen (þar sem munir úr Byggðasafni Hafnarijarðar eru til sýnis) og beggja megin við þau veitingahúsin tvö, A. Hansen og Riddarinn. Páll V. Bjamason arkitekt í Hafnarfirði hef- ur haft umsjón með endurbyggingu húsanna og að hans sögn var Bryde- pakkhúsið reist í kringum 1865, en viðbyggingin, sem í eina tíð hýsti slökkvistöð Hafnarfjarðar, nokkrum árum síðar. En Bryde-húsið er aðeins bráðabirgðarhúsnæði Sjóminjasafns- ins. Hafnarfjarðarbær hefur úthlutað safninu rúmgóðri lóð undir framtíð- arstarfsemi þess á svonefndri Skers- eyri, vestan bæjarins, niður undan hinni nýju Hrafnistu DAS. Páll arki- tekt segir: „Ég vona fastlega að við fáum áfram fjárveitingu til uppbyggingar því að hér kemst aðeins fyrir lítið brot af því sem til sjóminja telst. Ég hef gert lauslega áætlun um skipulag lóðarinnar á Skerseyri og það er afar brýnt að geta hafist þar handa sem fyrst, helst strax í sumar. Fyrsta bygg- ingin sem þar mundi rísa væri 500 fermetra bátaskýli, en margir hinna gömlu báta sem eru í eigu Þjóð- minjasafns liggja undir skemmdum vegna þess að það er ekki hægt að koma þeim í hús.“ Hinn langi aðdragandi að stofnun Sjóminjasafns íslands hefur áður ver- ið rakinn hér í Sjómannadagsblaði, síðast í greinum þeirra Þórs Magnús- sonar þjóðminjavarðar (1974) og Gils Guðmundssonar (1975 og 1980). Ekki skal því farið út í þá sálma að þessu sinni — aðeins minnt á að það var Sjómannadagsráð sem stóð fyrir hinni fyrstu eiginlegu sjóminjasýn- ingu hér á landi 1939. Næstu árin þar á eftir beitti Sjómannadagsráð sér mjög fyrir stofnun sjóminjasafns, lét m.a. semja frumvarp og reglugerð fyrir slíkt safn, en af ýmsum ástæðum varð ekki úr framkvæmdum. Þá sem nú var fjárskortur auðvitað stærsti þröskuldurinn. Þjóðminjasafnið fékk auk þess um þær mundir sitt nýja hús við Hringbraut: „Þá fluttist safnið úr þakhæðinni í Safnahúsinu við Hverf- isgötu í stórt og rúmgott húsnæði og mönnum hefur vafalítið virzt sem þarna yrði nægilega rúmt um safnið marga áratugi,“ segir i grein þjóð- minjavarðar. Það kom hins vegar fljótt á daginn að Þjóðminjasafnið hafði ekki tök á því að sinna söfnun sjóminja sem skyldi, bæði sökum féleysis og hús- næðisskorts. En þjóðminjavörðut hefur oftsinnis hvatt til skipulegrar söfnunar sjóminja og minnt menn á hversu óbætanlegt tjón andvaraleysi í þeim efnum getur valdið. Stofnun sérstaks sjóminjasafns var ekkert áhlaupaverk. Sjávarútvegssag- an er gríðarlega umfangsmikil og flókin — og það er eins og rnönnum hafi jafnan fallist hendur þegarað því kom að taka af skarið. Það er raunat ekki fyrr en 1973 sem skriður kemst á málið, en þá samþykkti Alþingi svohljóðandi þingsályktunartillögu Gils Guðmundssonar og Geirs Gunnarssonar:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.