Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Side 30

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Side 30
28 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ Grímur trollaraskáld ENDALOK JÓNS ÞÖGLA gamla daga voru menn skapaðir. Það var á dögum ^ Guðs. Guð skapaði margskonar fólk í gamla daga og enginn hróflaði við því, sem Guð hafði skapað. Það var öllum skiljanlegt, að þar sem menn voru skap- aðir misjafnir, þá örtuðu þeir sig misjafnlega. „Hann er nú einu sinni svona gerður maðurinn," var sagt, „og það getur enginn gert að því, hvernig hann er gerður.“ Ætli það hafi ekki verið um níuleytið að morgni seint á jólaföstunni um miðjan þriðja áratuginn, sem togarinn Jökull lagðist að bryggju í Hafnarfirði. Hann vará ísfisk- iríi og ekki búinn að vera úti nema í tvo daga, þegar bil- aði damprör í spilinu. Jón þögli var á þessum togara. Hann var maður svo fá- máll að orð var á gert, og var þó margur sjómaðurinn orðfár. Það hefur svo lítið uppá sig að tala til náttúruafl- anna. Engar spekúlasjónir voru uppi með mönnum, af hverju þessi maður væri óvenju þögull. Hann var svona gerður. í allan annan máta, var Jón eins og gerðist og gekk um góða sjómenn, verkmaður ágætur og iðjusamur í landi milli vertíða, hélt kindur, átti skektu og réri fyrir hrogn- kelsi eða renndi færi. Heldur var tekið að halla undan í skrokknum á Jóni, maðurinn þó ekki nema hálffimm- tugur. Það var svo um margan á dögum Jóns, að það fór að sjást á þeim aldurinn uppúr fertugu. Jón var kvæntur maður og hét kona hans Margrét og áttu þau hjón tvö börn, dreng og telpu, hvort á sínu árinu þeim næstu við fermingu. Margrét Jónskona var betur farin í kroppnum en mað- ur hennar, enda fimm árum yngri. Það var stæðileg kona, Margrét. Konur voru heldur magrar í þessu plássi mikils fiskmetis og sumum körlunum var það ekki með öllu öfundarlaust, að Jón þögli skyldi búa við svo hlýlega konu, þegar margir þeirra, sem héldu sig líklegri til kvenhylli, áttu harðbýlt í rúmum sínum. Það gat komið fyrir að það bæri á góma í einhverjum stað með dárum á fylliríi, hver hefði verið ræða Jóns, þegar hann bað Margrétar sinnar. Hann gæti varla hafa komizt af með minna en þau þijú orðin: „Viltu giftast mér,“ — en það var tveimur orðum lengra mál en Jóni var tamt að nota. Bónorðið hefði tekið þrjá daga, héldu þeir, með einu orði á dag. Þeir illviljuðustu töldu að Margrét hefði orðið fyrir slysi, sem ekki var hægt að bæta nema með hjóna- bandi og það hafi verið Margrét, sem hafi stungið uppá hjónabandi og Jón þá komizt af með sitt venjulega já eða nei. Þetta voru auðvitað ýkjur öfundarmanna Jóns um fá- mæli hans. Hann átti til að tala mörg orð í einu, ef hann taldi sig þurfa þess og ekki sízt gat hann verið nokkuð skrafhreyfinn við konu sína. Almenningur í staðnum taldi jafnræði með þessum forstandshjónum í Jónsbæ, þó karlmönnum þættu brjóstin á Margréti álitlegri en hnút- urnar á Jóni. Það héldu líka menn að betra væri þessum flimturum, að Jón þögli heyrði ekki á tal þeirra. Fólki stendur ógn af mönnum, sem aldrei láta uppi hvað með þeim bærist. Hver veit nema þeir séu brjálaðir inní sér, geti orðið mannskæðir, ef þeir hrökkva úr skorðum. Jón bar það líka með sér, að hann myndi ekki geðlaus. Hann var skaplegur til augnanna, munnsins og kjálkanna; líkur steinbít á neðra andlitið. Maður hét Sigurður og kenndur við Jónsbæ. Hann hafði komið unglingur á hrakólum austan yfir Fjall og þau höfðu gustukað sig yflr hann hjónin í Jónsbæ. Hann reyndist þeirn vel þessi piltur, snúningalipur, natinn við skepnur og ötull að koma sér í hlaupavinnu, sem dugleg- um unglingum lagðist oft til. Þegar Sigurður hafði aldur til og þrek, kom hann sér með hjálp Jóns á togara og vann eftir það sjálfum sér. Hann var þó áfram heimilisfastur í Jónsbæ, nema leigði sér orðið herbergi í öðrum stað, því þau hjón höfðu þurft á kytrunni hans á loftinu að halda, þegar bömin stækk- uðu, enda þurfti Sigurður þá orðið meira pláss. Hann var í fæði hjá þeim hjónum, þegar hann var í landi og Margrét húsfreyja þjónaði honum en Sigurður rétti henni í staðinn hönd, ef henni var manns vant til að rétta við girðingu eða reka nagla en Jón á sjó. Sigurður var rúmt þrítugur þegar hér gerist sagan, vel- liðinn maður en heldur fáskiptinn, þótt hann talaði fleira en Jón þögli. Það eitt mátti kallast heldur undarlegt við Sigurð. þennan sómamann, orðinn stöndugan, að hann hafði aldrei verið orðaður við konu. Þeir sögðu félagar Sigurðar, að hann væri svo hræddut við konur, að þær fengju ekki færi á honum. Sigurður lét hvem halda það sem hann vildi í þessu efni. Togari Sigurðar hafði komið úr siglingu deginum áðuf en Jökull og stöðvazt í sólarhring vegna ketilhreinsunat og karlamir fengið nótt í landi, sem var draumur togara- manna meðan á úthaldi stóð. Þessi togari var að leggja frá, þegar Jökull var að leggja að. Þeir stóðu framá hval- bak að ganga frá landfestum bátsmaðurinn á Jökli og Jón þögli, þegar þeir sjá mann koma á harða hlaupum niðuf bryggjuna og ná með naumindum að stökkva um borð í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.