Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 31

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 31
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 29 togarann, sem var að leggja frá. Þetta var Sigurður í Jóns- bæ. >,Hvað hefur komið fyrir hann Sigga,“ spurði báts- ^aðurinn á Jökli, „það er nú ekki vanalegt, að hann Passi sig ekki betur um borð en svona. Það skyldi þá aldrei vera að einhver kvensan hafi loksins náð honum uPpí til sín.“ Bátsmaður þessi gat ekki hugsað sér aðra ástæðu til bess að menn misstu af skipi. Jón þögli anzaði þessu tali ekki orði. Skipsmenn á Jökli hröðuðu sér frá borði. Þeim var Sagt að mæta aftur klukkan sex. Jón þögli hafði spyrt UPP bútung og hirt ruslfisk í pokaskjatta og hélt heim b'yijaður. í*egar heim kom hengdi hann upp spyrður sínar á nagla utan á bíslaginu og lagði þar frá sér pokann með ruslfiskinum, mest keilu. Hann ætlaði að leggja sig stundarkom áður en hann saltaði fiskinn. Menn komu °ft vansvefta af sjó. Jónsbær hafði verið torfbær og stóðu enn veggimir, en busið annars allt timbrað. Á jarðhæð var eldhús, stofa og Svefnherbergi og öll voru þau herbergi lítil, því að alþýða ^Panna byggði ekki stórt á þriðja áratugnum. 1 hálfu risinu var kytra, sem bömin sváfu í, en í hinum nelmingnum geymslupláss. Þar var bekkur með hey- ^Ýnu og fengu langferðamenn austan yfir Fjall, kunn- *ngjar þeirra hjóna, stundum að fleygja sér þar á ferðum Sl'num. Það var ekki oft, að Jón kæmi svo af sjó, að kona hans væri ekki á bæ, en nú var enginn heima, börnin í skólan- um og konan brugðið sér eitthvað frá, líklega í búðina. Jón fór úr utanyfir fötum sínum frammi í bíslaginu, því að konan vildi ekki sjógalla-lyktina í svefnherbergið. Svo fékk Jón sér vatn í vaskafat og þvoði það mesta af sér í eldhúsinu, en síðan hélt hann inní svefnherbergið. Hann var þó ekki þar, þegar konan nokkru síðar kom heim úr búðinni. Margrét hraðaði sér heim, þegar hún sá Jökul kominn óvænt að bryggju. Hún sá strax á spyrðunum og sjógall- anum, að maður hennar myndi kominn og kallaði á hann um leið og hún gekk í bæinn en fékk ekkert svar. Maður hennar var ekki í eldhúsinu og Margrét leit inn í svefnherbergið. Herbergiskytran var full af tóbaksreyk og konan tautaði fyrir munni sér, eins og það fólk gerir oft, sem mikið er eitt. „Ólukku fýla er þetta,“ — og flýtti sérað opna gluggann uppá gátt. Hún beygði sig síðan eft- ir nærfötum, sem lágu á gólfinu við rúmstokkinn og sá þá pípuna á svefnherbergisborðinu. „Ajæja, hefur hann Sigurðurblessaðurgleymt pípunni sinni —.“ Sigurður hafði komið í býti þennan morgun í Jónsbæ að fá sér kaffisopa áður en hann fór til skips, svo sem vani hans var og einnig til að taka með sér hreinan fatn- að. Margrét átti ekki von á bónda sínum í bráð og sagði Sigurði, að það hefðu losnað stautur í gluggakarminum, sem var þar til að smeygja á járni, sem hélt glugganum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.