Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 33

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 33
gJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 31 °Pnum. Sigurður hélt að það væri ekki ofverkið sitt að skrúfa stautinn fastan, og þegar hann hafði drukkið kaff- ið og kveikt í pípunni sinni, fór hann inní svefnherbergið að fást við stautinn. Verkið vannst honum seinna en hann hafði ætlað og hann var orðinn seinn fyrir þegar hann varbúinn. Margrét vildi þá að hann skildi eftir þau föt sem hann var í, því að hún væri búin að þvo allt af honum, sem hann hafði komið með daginn áður. Sig- Urður reif sig í skyndi úr fötunum, þar sem hann stóð, og Þaut síðan af stað til skips og mátti ekki seinna koma svo sem lýst hefur verið. Margrét húsfreyja tók pípu Sigurðar með sér frammí eföhús. Jón gæti tekið hana með sér, það var svo oft sem Þför hittust, Sigurður og hann, þegar togarar þeirra föituðu vars inni á fjörðum vestra. Ekki leitaði Margrét frekar að bónda sínum, heldur taföj víst, að hann hefði farið útí hjall eða fjárkofa ein- hverra erinda. Hún tók að vinna sín venju morgunverk í húsinu. Hún fór uppá loft að taka þar eitthvað til hendi í her- ^ergi bamanna, það veitti nú sjaldan af, það var orðið bröngt um þau þarna og þau voru að verða of stór til að Vera saman í herbergi, hann Jón yrði að fara að koma því 1 verk að innrétta geymsluloftið fyrir annað þeirra. Loftsgatið var á geymsluloftinu framan við kytru barnanna. Það lagði skímu um lítinn stafnglugga inná föftið. Margréti brá, þegar hún kom uppá loftið og sá að bað fá maður á bekknum undir glugganum. Þetta var sjalfur húsbóndinn sem þama sneri upp tánum og nef- lr>u. Andlitið var í skugga, skíman innum stafngluggann náði ekki að varpa birtu á það, Margrét sá því ekki ^föggt, hvort Jón var sofandi eða vakandi en sagði í fát- lnu: „Jón minn, af hveiju liggurðu þarna, ertu veikur, af bverju liggurðu ekki niðri, hvað er að?“ Þegar maðurinn ar>zaði engu og bærði ekki á sér, laut hún niður að hon- Ul^ og sá þá að augu hans voru opin, en svo starandi að nur> gat ekki merkt að þau kvikuðu. „Guð almáttugur föálpi mér Jón, ertu dáinn?“ spurði konan í ofboði og Þeifaði á enni manns síns. Það var volgt. Þá stakk hún nendinni inná hann og þreifaði eftir hjartanu. Það sló. ffön talaði nú enn til hans og var nú orðin svo skelkuð, að hún sagði: >,Elsku Jón, hvað er að þér?“ Ástarorð voru ekki tíð sföasta áratuginn í Jónsbæ og kannski aldrei, fremur en °vildarorðin. Jóni þögla var vissulega ekki gjarnt að hrökkva við, en nann hefði nú átt að gera það við svo óvænt ávarp en nann bærði ekki á sér. Þá rann konunni loks í skap og nun tók að hrista mann sinn, hún varð að fá einhvem u°tn í þetta. Margrét hafði aldrei hrist mann sinn til, og v»ssi ekki hver viðbrögð hans yrðu. Henni hefði samt e^ki komið til hugar að hann brygðist eins við og hann §erði. Hann greip um báða upphandleggi hennar þeim Ueljartökum að hún rak ósjálfrátt upp vein og var hún þó ?°na hörð af sér. Þegar hann sleppti tökunum hrökklað- lst hún í skelfingu sinni afturábak fram loftið og var n$rri fallin niður um opið loftsgatið. Hún flýtti sér niður 1 st*gann og kallaði þaðan: „Hvað á ég að gera Jón, á ég að kalla á lækninn eða kannski prestinn?“ Við þessu fékk hún ekkert svar og hélt þá áfram niður og lét falla á eftir sér hlerann. Margrét var allt í senn undrandi, hrædd og reið. Hvað gat hafa hent manninn. Hún taldi sig þekkja bónda sinn eftir tuttugu ára sambúð. Hjónaband þeirra hafði verið samfellt staðviðri. Árum saman hafði þetta gengið svo til í þeirra hjónalífi, að hann heilsaði henni með sömu orð- unum, þegar hann kom heim af sjónum: „Komdu sæl góða mín,“ — og kyssti hana á kinnbeinið, ævinlega vinstra megin; svo rakti hún ítarlega fyrir honum, hvemig allt hefði gengið til meðan hann var í burtu, hvernig börnin hefðu artað sig og síðan kindurnar og hann samþykkti ævinlega allt sem hún hafði gert, það var þá helzt ef hún hafði keypt eitthvað, sem hann hélt að hefði mátt dragast eða alveg falla niður, svo sem gúmískó á strákinn, þegar það hefði mátt bæta einni bót- inni enn, en þeim varð aldrei að orðum útaf þessu, aðeins andóf. Á ísfiskvertíðum var venja Jóns, að snúa sér að konu sinni, þegar hann kom úr siglingu, og það gat orðið allt að þrisvará hausti. Á saltfisksúthaldinu frá því í byrjun febrúar og fram- um miðjan júní, var hjónalífið í sænginni tíðinda lítið í Jónsbæ.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.