Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 39

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 39
36 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ fannst mér þetta vera dálítið um- hugsunarefni, en þar sem ég kunni ekki vel við að vera innilokaður lét ég slag standa, fannst tilhugsunin spennandi, og sagði fangaverðinum að ég færi með Jarlinum. Ég neita því ekki að mér fannst hver dagur svolítið forvitnilegur á leiðinni heim. En það bar ekkerl til tíðinda. Við fórum til Siglufjarðar þar sem skipað var upp kolum og þar fór ég í land. Jarlinn hélt síðan áfram til ísafjarðar, keypti þar fisk og sigldi með hann til Englands. Síðan hefurekkert til hans spurst. Eitt langar mig til að nefna í sam- bandi við siglingarnar á stríðsárun- um. Á þessum árum þegar kalla má að við sjómenn höfum verið í stöð- ugri lífshættu (þó við gerðum okkur tæplega grein fyrir því), þá voru menn í landi stanslaust að básúna það í blöðurn og útvarpi hvað við værum miklar hjálparhellur banda- manna með þessum fiskflutningum. Þessu tali reiddist maður því það var auðvitað hrein ögrun gagnvart Þjóð- verjum. Eftir árásimar á Reykjaborgina og Fróða sigldi maður eins og nraður gat. Þá fækkaði þeim sjómönnum sem vildu sigla og maður tók allt sem bauðst, fór ýmist sem háseti, stýri- maður, kokkur eða kyndari. Maður var ókvæntur og einn á báti. Auðvitað vissi maður um hættuna en hún var sjaldnast yfirvofandi. Tundurduflin blöstu náttúrlega oft við en mest ógn stóð okkur af kafbát- urn. Mér er minnissætt að einu sinni þegar við komum heim og vorum á siglingu út af Reyðarfirði í vonsku- veðri, þá gátum við talið milli sextíu og sjötíu dufl á nokkurra mílna svæði. Eitt sinn skalf hurð nærri hælum. Við vorum á siglingu í hafi og tveir í brúnni, Ingvar Jónsson og ég. Ingvar var framúrskarandi sögumaður, kunni heilu skáldsögumar utan bókar og sagði okkur þær stundum í góðu tómi og þama var hann að segja mér frá Ben Húr með miklum tilþrifum. Það var spegilsléttur sjór og ég taldi óþarft að sýna sérstaka aðgæslu, hvergi skip í sjónmáli og sjórinn eins og heiðatjöm framundan. Ég hlustaði með áhuga á Ingvar, en leit annað slagið upp á kompásinn. Og eitt skiptið sem ég leit upp blasti við tundurduff beint fyrir framan stefnið örfáa metra undan! Ég lagðist í of- boði á stýrið og beygði í stjórnborða — og þetta hafðist, duflið skreið aftur með síðunni, en það stóð svo tæpt að ég varð undireins að leggja í bak- borða til þess að afturendinn færi ekki í duflið. Rétt á'eftir kom kokk- urinn óðamála upp í brú. Hann hafði verið að kasta rusli en heyrt glamra í niðursuðudósunum og það hafði hann aldrei heyrt áður þegar hann fleygði úr ruslafötunni í sjóinn. Hann sagðist hafa gáð fyrirborðstokkinn og uppgötvað sér til skelfingar að hann hafði losað úr fötunni á tundurdufl! En sem betur fór þurfti meira til en nokkrar niðursuðudósir til að sprengja duflið og við sigldum áfram eins og ekkert hefði í skorist.“ að hefur löngum verið sjó- mönnunr örðugt að finna sér störf í landi þegar þeir hafa hætt sjómennsku, ýmist sökum heilsubrests eða af öðrum ástæðum, en samt mikið eftir í þeinr til annarra starfa. Það var ekki áfitlegt og síst fyr- ir þarnmarga fjölskyldumenn að halda lengi til á togurum, eigandi það yfir höfði sér, komnir á miðjan aldur, að þykja ekki fullgildir í góð skiprúm og verða að hrekjast í þau lélegri eða fá alls ekki pláss — og þurfa síðan að ganga milli manna í landi, gamlir og slitnir, hafandi enga kunnáttu til neins nema sjómannsverka. Margur hefur þess vegna brugðið á það ráð að fara í land áður en tæki að halla undan fyrir honum og vera þá heldur fær urn að fá sæmilegt starf, nógu ungur til að læra eða skapa sér eitt- hvað sjálfur. Svo gekk það til með Steingrím Bjamason. Hann fór í land rúmt þrí- tugur að árum og átti þá reyndar sautján ára sjómannsferil að baki. í lok stríðsins gekk Steingrímur að eiga konu sína, Kristínu Kristjáns- dóttur frá ísafirði. Þau hjón áttu sam- an ellefu böm á fimmtán árum. Og þegar fjölskyldan tók að stækka fannst Steingrími hann þurfa að tryggja framtíð sína og bamanna með ein- hverju því starfi sem hann entist betur við en sjómennskuna. Hann hætti til sjós 1949 og vann við bílaréttingar næstu tvö árin. Hann hafði góðartekj- ur, því vinnan var mikil, — en ein- hvern veginn kunni hann nú betur við að handleika fiskinn en blikkið í bíl- unum og hann tók fljótlega að bræða það með sér að koma sér upp fiskbúð. Steingrímur hafði sjálfur byggt hús sitt við Sogaveg og tekist að gera það ódýrt og fannst því fýsilegra að fá lóð undir fiskbúð heldur en að reyna að kaupa fiskbúð í rekstri. Hann sneri sér til borgaryfirvalda og var úthlutaður lítill skiki við Hæðargarð í Bústaða- hverfi, gegnt Víkingsheimilinu sem nú er, en sú aðstaða var þó aðeins til bráðabirgða því það var ráðgert að reisa sérstakt verslunarhús í hverfinu. Steingrímur reisti sér 28 fermetra hús við Hæðargarðinn og rak í því litla plássi tvær búðir, fiskbúð og mjólkur- búð, í þijú ár. Bústaðahverfið var þá sem óðast að byggjast og verslun Steingríms var fmmheijaverslun í hverfmu og honum því vel tekið af íbúunum. r Eg á það Gunnari Thoroddsen. þáverandi borgarstjóra, að þakka að ég gat haldið áfram fisksölu í Bústaðahverfinu. Þegar verslunarhúsið við Hólmgarð (næstu götu við Hæðargarð) var byggt af borginni þá voru allar einingar húss- ins seldar hæstbjóðanda og ég átti ekki hæsta boð í fiskbúðarplássið, — en Gunnar Thoroddsen lagði á sig þau óþægindi að kippa því í liðinn. Jú, nú eru bráðum 35 ár síðan ég byijaði í fisksölunni. Og ætli fiskbúð- um hafi ekki fækkað á þeim tíma um fjörutíu til fimmtíu hér á höfuðborg- arsvæðinu. Ég gæti best trúað því. Sarnt held ég að það sé ekki borðað mikið ininna af fiski nú, heldur end- urspeglar þessi fækkun breytta versl- unarhætti. Núorðið er fiskur seldur í öllum stærri matvörubúðum og nú eru þessir miklu markaðir sem ekki þekktust fyrr á árum og þar er boðið upp á ijölbreytta fiskrétti. Fisksalan hefur sem sagt færst að talsverðu leyti úr fiskbúðunum yfir í markaðina og það held ég að hafi verið þróun sem erfitt hafi verið að spoma gegn. Sum- part vegna þess að okkar ágætu stjórnmálamenn eru alltaf að reyna SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 37 að bjarga vísitölustigunum og þeir ^afa notað okkur fisksalana töluvert í beim efnum. Árum saman fengum v'ð svo lága álagningu að oft á tíðum v'ar ekki lifandi á fisksölunni. Við gerðum varla meira en skrimta og vegna þess arna hafði fisksalinn ekki fjármagn til að dubba upp búð sína ems og aðrir kaupmenn þegar neyt- er>dur tóku að gerast kröfuharðari. Orðugleikar fisksala við að afla sér llskjar hafa löngum verið til umræðu J^eðal fisksala og nokkru eftir að ég ðyrjaði stakk ég upp á því á fisksala- lundi að það yrði kosin nefnd til að mnnsaka hvort ekki væri hægt að koma á laggirnar sameiginlegri inn- Mupamiðstöð fyrir okkur fisksala. Þetta var samþykkt og við Ari Magn- usson, fisksali í Hlíðunum, vorum *j°snir í nefndina. Það bar þann arangur að við gengum í félag, rúmt luttugu fisksalar og stofnuðum Fisk- ^iðstöðina h/f. En fljótlega eftir stofnun Fiskmiðstöðvarinnar komst e§ 1 andstöðu við félaga mína sem v°ru með mér í stjórninni og dró mig ut úr þessum félagsskap. Ég skipti þó aHtaf við Fiskmiðstöðina þegar eitt- yað var þar að hafa, en ég hætti að ata afskipti af rekstri og stjóm fyrir- t$kisins. hað reyndu nokkrir fyrir sér sem 0rstjórar Fiskmiðstöðvarinnar en reksturinn náði sér ekki á strik og 8ekk reyndar allur á afturfótunum. pegar svo var komið að það var ekkert að gera annað en að skella í lás °§ hætta þessu, þá tók við stjórninni Ur>nlaugur Kristjánsson, fyrrum °garaskipstjóri. Eftir að hann kom 1 sögunnar snerist dæmið við. Unnlagur gerði Fiskimiðstöðina að ?torfyrirtæki á þremur árum. Hann Vggði upp þannig kerfi að hann lét eyra fiskinum í búðimar til okkar Sv° að við gátum komið á fólksbílum v>nnuna eins og aðrir kaupmenn á , 'kkanlegum tíma. Gunnlaugur yggði geysimikið hús þar sem ^gfjörð er nú úti í Örfirisey, rak tvo stora vörubíla sem sóttu fisk suður !^eb sjó og síðan hafði hann yfir- ^ggða sendibíla til að færa okkur lskinn í búðimar. Þetta var fyrir- ^tyndar ástand, — en það varði því I >ður ekki nema í þijú ár. Gunn- augs naut stutt við, hann lést 1962 og 1 * m hJ EZL ■“SBjfP' Jt 1 I ! Steingrímur í fiskbúð sinni í Grímsbæ. Ljósm. Björn Pálsson. eftir það sótti allt í sama farið; Fisk- miðstöðin fór á hausinn eins og leit út fyrir þegar Gunnlaugur kom til skjalanna. Það er eins og fyrri dag- inn, veldur hverá heldur.“ Steingrímur verslaði í sautján ár í Hólmgarðinum, 1954—72. Árið 1956 opnaði hann aðra fiskbúð í bílskúmum heima hjá sér á Sogaveginum og rak hana hátt í tíu ár, eða þar til Kron-húsið var byggt á horni Sogavegs og Tunguvegs og þar opnuð fiskbúð. Þá var Steingrímur nauðbeygður að loka sinni búð; markaðurinn þoldi ekki tvær fisk- búðir svo nálægt hvor annarri. Þetta hafði ekki fyrr gerst en fiskbúðin í Hólmgarði var í hættu líka. Skipu- lagsyfirvöld gerðu ráð fyrir verslun- arsamstæðu í Efstalandi 26 og þar í fiskbúð, aðeins örstutt frá verslunun- um í Hólmgarði. Steingrími tókst að tryggja sér fisk- búðarplássið í Efstalandinu og hugð- ist þá loka búð sinni í Hólmgarði. En bygging hinnar nýju verslunarsam- stæðu dróst á langinn, enda þótt Fossvogurinn héldi áfram að byggj- ast. Steingrímur sá þörfina fyrir slíka verslunarmiðstöð fara sívaxandi og gekk því einn daginn á fund borgar- yfirvalda að spyrja hverju þessi seinagangur sætti. Hann fékk þau svör að þeirsem höfðu fengið úthlut- að aðstöðu í húsinu með honum hefðu dregið sínar umsóknir til baka og það væri óvíst hvort byggingin yrði reist þar eð hann væri aðeins einn eftiraf umsækjendunum. Er þá ekki best að ég byggi? spurði Steingrímur. Hann var spurður á móti hvort hann treysti sér til að ráðast í slíkt stórvirki upp á eigin spýtur. Stein- grímur bað um frest til að ráða það við sig — en það tók hann ekki nema nóttina að hugsa málið. Hann kom
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.