Sjómannadagsblaðið

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 73

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Qupperneq 73
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 71 saman athafnasvæði Eimskipafélags- ins í Vatnagörðum við athafnasvæði Sambandsins í Kleppsvík, en með því mundi skapast allverulegt hag- ræði og skipafélögin gætu þá nýtt í sameiningu ákveðin stórvirk flutn- ingatæki sem nútíma flutningatækni krefst. Fyrri hugmyndir um að næsti áfangi í uppbyggingu Sundahafnar yrði á klettasvæðinu, þ.e. norðan Korngarðs að Skarðakletti, virðist nú fjarlægari en áður var talið. Gamla höfnin verður áfram fiski- höfn. Reykjavíkurhöfn er ein af stærstu fiskihöfnum landsins og hér hefur oft verið landað um eða yfir 100 þúsund tonna afla á ári. Nú þeg- ar hefir verið unnið að umtalsverðri landaukningu við vesturhöfnina til að bæta aðstöðu fiskvinnslu og þjón- ustufyrirtækja við útgerðina. Höfuð- agnúi vesturhafnarinnar sem fiski- hafnar er að hún er nú að hluta til of grunn. Allt hafnarsvæði görnlu hafn- arinnar var dýpkað á sínum tíma í 5—6 metra, en vesturhöfnin aðeins í 5 metra, enda var hún upphaflega byggð að mestu fyrir báta og minni fiskiskip. Nú hafa 1000 rúmlesta tog- arar og stærstu loðnuskipin þarna að- stöðu með ristu 7 metra fulllestuð. Það er því aðkallandi verkefni að dýpka ákveðin svæði í vesturhöfn- inni. í allri vesturhöfninni geta skip núna tengst rafmagni úr landi sem mikið er nú lagt upp úr, m.a. vegna viðgerða og- sömuleiðis til að halda skipum heitum þegar vélar ganga ekki. Hitaveituvatn er einnig hægt að fá í vesturhöfninni, m.a. til þvotta, og ég hugsa að Reykjavíkurhöfn sé eina höfn landsins, ef ekki í heimi, sem veitir slíka þjónustu. Austurhöfnin mun í framtíðinni trúlega fyrst og fremst nýtast sem leguhöfn, til geymslu á skipum, en hún mun jafnframt verða notuð sem aðstaða fyrir tilfallandi komur skipa sem ekki rista meira en svo að þau komast þar að bryggju. Minni skemmtiferðaskipin komast til dæm- is að Ægisgarði og í austurhöfnina verður ennfremur vísað fjölda rann- sóknar- og eftirlitsskipa sem til lands- ins koma og ekki þurfa neina umtals- verða aðstöðu aðra en viðlegupláss. Akraborgin verður væntanlega enn um sinn hér í gömlu höfninni, en vegna skipulagsbreytinga eru líkur á að það þurfi að finna henni annan stað þegar fram líða stundir. Það má hugsa sér að einhver not verði áfram á hluta af þeim vöru- geymslum sem standa á Austurbakk- anum, en um það liggja ekki fyrir endanlegar tillögur ennþá. Já, það eru allar líkur á því að Slippurinn verði hér áfram. Eins og ég gat um áðan hafa þeir aðilar sem vinna að skipaviðgerðum í Reykja- vík ekki talið fýsilegt að fiytja starf- semi sína inn í Kleppsvík þar sem Reykjavíkurhöfn hafði ætlað þeirri iðju framtíðarstað. Slippfélagið hefur nýverið skýrt frá ákveðnum hug- myndum um endurbætur á starfsemi sinni og það standa einnig vonir til þess að nánara samstarf takist með rekstri Slippfélagsins og Stálsmiðj- unnar, þannig að þessi tvö fyrirtæki gætu byggt upp í sameiningu veru- lega betri viðgerðaraðstöðu heldur en nú er á svæðinu og væri það vel. Aðstaðan til viðgerða hefur verið það slæm hin síðari ár að það hefur dreg- ið talsvert úr skipaviðgerðum í Reykjavík, en það er fiskiskipaflot- anum mjög mikilvægt að það sé góð slippaðstaða í fiskihöfninni. Fiskmarkaður? Hugmyndir um fiskmarkað í Reykjavíkurhöfn hafa oft skotið upp kollinum en aldrei orðið að veruleika. Það má segja að síðustu aðgerðir stjórnvalda, m.a. í sambandi við fiskverð, ýti undir að fiskmarkaður hér geti orðið hag- kvæmt fyrirtæki, og á síðasta fundi hafnarstjórnar (þ.e. um miðjan apríl) var samþykkt að fela hafnarstjóra að eiga viðræður við nefnd á vegum sjávarútvegsráðuneytisins sem fjallar um hugsanlega fiskmarkaði. Af öðru nýmælum sem hafnar- stjórn hefur fjallað um má nefna fisk- eldi, en þremur fyrirtækjum hefur nú verið heimilað að leggja út eldisnæt- ur í Eiðsvík. Eiðsvík og Geldingarnes eru einu svæðin í borgarlandinu þar sem hugsanlegt er að koma upp að- stöðu fyrir einhvers konar stóriðju sem þarf á miklu landrými að halda og hafnaraðstöðu fyrir stærri skip. Ég hygg að framtíðarsýn hafnar- innar sé tiltölulega björt,“ segir Gunnar B. Guðmundsson að lokum. „Á síðustu árum hefur hafnarsjóður verið nokkuð hart keyrður fjárhags- lega sökum örrar fjárfestingar, en þeim þrengingum mun linna í lok þessa áratugar. Við horfum því bjart- sýnir fram á veginn í þeirri vissu að hafnarsjóður muni hafa nægjanlegt fjármagn til að byggja upp hag- kvæma aðstöðu sem umferðin um höfnina kann að þarfnast í náinni framtíð. Hagkvæm hafnaraðstaða er mjög þýðingarmikil fyrir þjóð sem rekur hlutfallslega mikla utanríkis- verslun." J.F.Á.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.