Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 87

Sjómannadagsblaðið - 08.06.1986, Page 87
SJOMANNADAGSBLAÐIÐ 85 Þess vegna sagði hvalurinn við kæna litla fiskinn: „Þessi maður er mjög beizkur á bragðið, og þar að auki er ég búinn að fá hixta af honum. Hvað á ég nú að gera?“ „Segðu honum að koma út aftur,“ svaraði kæni litli fiskurinn. Þá hrópaði hvalurinn til sjómannsins ofan um kokið á sjálfum sér: „Komdu út og hegðaðu þér siðsamlega. Ég erbúinn að fá hixta.“ „Nei, nei!“ svaraði sjómaðurinn. „Það verður nú ekki af því. Syntu fyrst með mig heim til mín, til íslands bláu stranda, síðan getum við talazt við.“ Svo fór hann aftur að dansa, og lét hálfu verr en áður. „Það verður víst bezt fyrir þig að fara heim með hann,“ sagði kæni litli fiskurinn við hvalinn. „Ég var búinn að segja þér það fyrirfram, að hann væri með fá- dæmum snarráðurog ráðsnjall maður.“ Svo synti og synti og synti hvalurinn með báðum bægslunum og sporðinum, eins hratt og hann gat fyrir hixta. Og loksins sá hann djarfa fyrir íslands bláu strönd- um og heimkynni sjómannsins. Og hann hljóp hálfur á land upp á Hvalfjarðarströnd, glennti munninn upp á gátt og kallaði: „Farþegar til Faxaflóa fari hér á Iand!“ Og um leið og hann sagði „land“, labbaði sjómaðurinn út úr munninum á honum . En á meðan hvalurinn var að synda heim til íslands bláu stranda, hafði sjómaðurinn, sem í raun og veru var með fádæmum snarráður og ráðsnjall, opnaði sjálfskeið- inginn sinn og kloFið með honum flekann, og búið til úr honum ferskeytta grind, með rimlum þvert og endilangt, og hann batt hana saman með axlaböndunum sínum, (nú skiljið þið, hvers vegna þið máttuð ekki gleyma axla- böndunum!) og hann dró grindina alla leið upp í kok á hvalnum, og þar festist hún! Og síðan mælti hann fram þessa vísu, sem ég ætla nú að hafa yfir, því að þið hafið ekki heyrt hana áður: Girt hef ég nú fyrir gaphús þitt, þú gleypir ei fleiri, hróið mitt. En sjómaðurinn var ættaður af Skaganum, og nú lagði hann af stað gangandi heim til móður sinnar, sem hafði leyft honum að sulla með tánum í sjónum. Og hann kvæntist og lifði hamingjusömu Iífi alla ævi síðan. Og það gerði hvalurinn líka. En grindin var alltaf föst í koki hans upp frá þessum degi, og honum tókst hvorki að hósta henni upp né kingja henni, og hún aftraói því, að hann gæti borðað annað en örsmáa Fiska. Og þetta er ástæðan til þess, að hvalir nú á tímum borða aldrei menn, eða drengi eða litlar stúlkur. Litli kæni fiskurinn flýtti sér í burtu og faldi sig í leiðj- unni undir þröskuldinum á miðjarðarlínunni. Hann var hræddur um að hvalurinn mundi verða reiður við sig. Sjómaðurinn hafði heim með sér sjálfskeiðinginn. Hann var í bláu segldúksbuxunum, þegar hann sté á land. Axlaböndin skildi hann eftir, eins og þið getið nærri, því að með þeim batt hann saman grindina. Og svo er þessi saga ekki lengri. Halldór Stefánsson íslenskaði. Hér sjáið þið hvalinn vera að leita að kæna litla fiskinum, sem faldi sig undir þröskuldinum á miðjarðarlínunni. Kæni litli fiskurinn hét Brúsi. Hann felur sig milli rótanna á stórri þang- jurt, sem vex fyrir framan dyrnar á miðjarðarlínunni. Ég hef teiknað miðjarðarlínudyrnar á myndinni, þær eru lokaöar. Þær eru alltaf hafðar lokaðar, því að það á alltaf að loka dyr- um. Strikið, sem nær þvert yfir myndina og lítur út eins og kaðall, er sjálf miðjarðarlínan, og hlutirnir, sem eru að sjá eins og steinar, eru tveir risar, Már og Kár, sem gæta miðjarð- arlínunnar. Það eru þeir, sem hafa tciknað skuggamyndirnar á hurð miðjarðarlínunnar og skorið út alla snúnu fiskana fyrir neðan hurðina. Fiskarnir með trjónurnar heita trjónuhöfrung- ar, og fiskarnir með undarlegu höfuðin heita hamarhákarlar. Hvalurinn fann ekki kæna litla fiskinn, fyrr en honum var runnin reiðin, og þá urðu þeir aftur góöir vinir.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.