Eimreiðin - 01.09.1922, Síða 4
196
UPPELDI OG SKÓLAR
EIMREIÐIN
ekki nóg að hafa heyrt, hvernig eigi að beita hendinni við
það; við verðum að láta hendina gera það sjálfa. Og það er
ekki nóg, að láta hana gera það einu sinni eða tvisvar á
réttan hátt; við verðum að temja okkur leikni með ótal endur-
tekningum.
Þessa leikni í handbrögðum skortir okkur tilfinnanlega, og
hygg eg, að bæta mætti mikið úr þeim skorti með því að
leggja meiri áherslu á líkamsuppeldið í skólunum en nú er
gert. Mundi það hafa mikil áhrif á uppeldi sálárinnar, beinlínis
og óbeinlínis. Það er ekki nóg að muna eða vita feiknin öll,
ef maður getur lítið eða ekkert. Og það er ekki nóg að geta
margt og mikið, ef maður vill lítið eða ekkert. Frumafl
mannsins er viljinn. Fyrst og fremst ættu skólarnir að þroska
vilja barnanna og það geta þeir best með iðkun.
í skólum í Aberdeen, sem eg skoðaði vorið 1920, lærðu
nemendur handtök við fjölda algengra starfa. Kent var t. d.:
að búa til og gera við hluti úr tré, blikki og pappa, skósmíði
eða skóviðgerð, bókband, bastvinna, útskurður, mótun mynda
úr leir o. s. frv. Stúlkum var k'ent að hirða um húsgögn, búa
um rúm, raða húsgögnum í stofur, svo að snoturlega færi og
auðvitað eldhússtörf, viðgerð fata, saumur o. þ. h. I kjallara
eins skólans var sundlaug 60 X 12 álna, og var í hana veitt
heitu og köldu vatni eftir vild. Var það ein kenslustofan.
Annar útbúnaður skólans var eftir þessu. Eg veitti því eftir-
tekt, að Aberdeenbúar voru rösklegri í fasi, en menn í öðrum
borgum Skotlands, sem eg kom í, enda var meiri velmegun
þar en annarsstaðar. Mentamaður skotskur sagði, að það væri
alment viðurkent, að Aberdeenbúar væru duglegustu nýlendu-
menn Skota. Ekki veit eg, að- hve miklu leyti skólar þeirra
eiga þátt í að ala upp þessa duglegu menn, en áhrif þeirra
hljóta að vera mikil, þegar þess er gætt, að börnin eru í skól-
anum alt að 100 mánuðum alls. Mér virtust þessi börn meira
vakandi og ekki eins sljófguð og börnin í skólum í Kaup-
mannahöfn, enda voru kenslustundir í andlegum nárnsgreinum
að því skapi styttri sem börnin voru yngri, alt að 20 mínútur
stytstar, en ekki full klukkustund í öllum bekkjum, eins og
hér og í dönskum skólum alment.
Við getum ekki fyrst um sinn hugsað til að gera skóla