Eimreiðin - 01.09.1922, Blaðsíða 35
EIMREIÐÍN
TVÍSONGSLISTIN Á ÍSLANDI
227
veturinn 1699). Og auk þess ritaði hann lækningakver, alþýðu
til leiðbeiningar, svo að læknisráð hans mættu ná til sem
flestra. — Hér er um sannþjóðrækinn mann að ræða og
eftirbreytanda Krists.
Svo lýk eg máli mínu með því að tilfæra einn af sálmum séra
Odds, sem eg hefi fundið í handritum í heilu lagi. Má af hon-
uni marka, hvernig þessar þýðingar hans hafa verið.
Sálmurinn er Hirðissálmur Davíðs og er svo látandi:
Guö er minn hirðir,
af trú eg það játa,
ei mun hann mig því
lífsbjörg skorta láta;
í högum græns grass
hann mig liggja lætur,
hægt mig knýr fram að
lindarvatni sætu;
önd minni þreyttri
aftur snýr við þetta,
og vegna nafns síns
ferla leiðir rétta.
Um dauðans myrkdal
eg þó gangi, herra,
óttast ei vont, því
þú munt hjá mér vera;
þitt hrís og stafur,
þau mig hollast hugga,
þú býr mér matborð
gegn þeim mein mér brugga,
oleo vel smurt
veikt mitt höfuð hefir,
hvað fleytifullan
bikar þú mér gefur!
Víst mun þín mildi
og ástargæskan heita,
æ meðan eg lifi
eftirför mér veita;
eg mun í Drottins
húsi heima eiga,
hvað lengi sem að
dagar vara mega.
Þá mun eg þakkir
þér í staðinn kunna
þér eg, minn hirðir,
fullkomlega muna.
B. J.